Fotbolti.net
12.08.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Villa án þriggja lykilmanna í kvöld

Ezri Konsa verður ekki með gegn PSG

Ezri Konsa verður ekki með gegn PSG

Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildarmeistarar Aston Villa verða án þriggja lykilmanna er liðið mætir Paris Saint-Germain í Ofurbikar Evrópu í kvöld.
Evrópa í dag - Aston Villa og PSG mætast í Ofurbikarnum
TENGT EFNI

Evrópa í dag - Aston Villa og PSG mætast í Ofurbikarnum

Unai Emery, stjóri Aston Villa, hefur staðfest að Ezri Konsa, Emiliano Martínez og Ollie Watkins verði ekki með liðinu.

Watkins hefur verið aðalframherji Villa undanfarin ár og raðað inn mörkum. Konsa og Martínez hafa á meðan verið lykilmenn í vörninni og markinu.

Emery vill gefa þeim lengri hvíld fyrir tímabilið en allir þrír hafa verið orðaðir við brottför síðustu vikur.

Konsa hefur verið á óskalista Arsenal og Liverpool, Juventus reyndi að fá Martínez og Watkins hefur verið orðaður við félög í Tyrklandi.

Emery lagði þó áherslu á að fjarvera þeirra tengdist þátttöku þeirra á heimsmeistaramótinu. Þeir fengu viku lengra frí en flestir aðrir leikmenn hópsins.

„Þeir eru ekki hér vegna þess að þeirra tímabili lauk 19. júlí og ég gaf þeim fjögurra vikna frí. Þeir þurfa á hvíldinni að halda.“

„Auðvitað værum við með fleiri möguleika ef þeir væru hér en ég held að PSG sé í svipaðri stöðu. Við undirbúum leikinn með þeim leikmönnum, þar á meðal ungu strákunum, sem hófu undirbúningstímabilið með okkur fyrir fjórum vikum,“ sagði Emery.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.