Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. september 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Zaha rekur umboðsmann sinn
Mynd: Getty Images
The Times greinir frá því í dag að Wilfried Zaha hafi ákveðið að reka umboðsmann sinn Will Salthouse.

Zaha hefur skrifað Salthouse bréf þar sem hann tilkynnti ákvörðun sína.

Salthouse rekur umboðsskrifstofuna USM en Zaha er ósáttur við að hann hafi ekki getað hjálpað sér að komast í stærra félag í sumar.

Everton og Arsenal vildu fá Zaha í sínar raðir en of hár verðmiði Crystal Palace kom í veg fyrir skiptin.

Zaha ku vera ósáttur við að umboðsmaðurinn Salthouse og Steve Parish, formaður Crystal Palace, eru góðir félagar. Zaha vill meina að Salthouse hafi ekki lagt nægilega mikið á sig til að ná félagaskiptum í gegn í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner