Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 12. september 2020 09:10
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Eggert Gunnþór, Freysi um landsliðið og íslenski boltinn á X977
Eggert Gunnþór Jónsson.
Eggert Gunnþór Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson mæta með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 alla laugardaga frá 12-14.

Í þætti dagsins munu þeir fara yfir bikarleiki vikunnar og skoða Ofursunnudaginn sem er framundan í Pepsi Max-deildinni.

Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari er í heimkomusóttkví en verður á línunni og ræðir um landsleikjagluggann sem er að baki.

Gestur þáttarins er Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH. Hafnarfjarðarliðið er að ganga í gegnum breytingar og unnu öflugan sigur gegn Stjörnunni í vikunni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner