12.10.26 - 08:19
Elvar Geir Magnússon
Bananarnir merki um stuðning við Man City á erfiðum tímum

Uppblásnir bananar í stúkunni.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Uppblásnir bananar í stúkunni.

Mynd: EPA
Fjölmargir stuðningsmenn Manchester City voru með uppblásna banana á Anfield í gær, þegar City vann 3-0 útisigur gegn Liverpool í sínum fyrsta leik eftir að félagið var dæmt sekt um alvarleg fjárhagsbrot.
Bananarnir eru táknmynd um erfiða tíma sem Manchester City hefur gengið í gegnum og eru í raun stuðningsyfirlýsing frá stuðningsmönnum sem gefa þau skilaboð að þeir verði áfram til staðar sama hvaða dóm félagið mun fá.
Mögulega var þetta síðasta heimsókn City á Anfield í einhvern tíma en ein sviðsmynd sem hefur verið teiknuð upp er að liðið verði dæmt úr ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
England: Man City vann tíu leikmenn Liverpool
Sagan á bak við gulu bananana
Stuðningsmenn City mættu fyrst með banana á erfiðum tíma í sögu félagsins. Samkvæmt The Mirror var það stuðningsmaður að nafni Frank Newton sem kom fyrstur með uppblásinn banana á gamla heimavöll félagsins, Maine Road, árið 1987 en félagið hafði þá nýlega fallið úr efstu deild.
Sóknarmaðurinn Imre Varadi, sem skoraði 31 mark í 81 leik fyrir Manchester City, hlaut viðurnefnið „Imre Banana“ og stuðningsmenn mættu með banana honum til heiðurs. Bananarnir voru notaðir til að minna fólk á að hafa gaman og halda húmornum þrátt fyrir erfiðleika félagsins Á annan í jólum 1987 ferðuðust tíu þúsund stuðningsmenn á útileik gegn Stoke City og tóku fjöldan allan af bönunum með sér.
Stuðningsmenn City hafa dregið reglulega fram banana við sérstök tækifæri eftir þetta og gerðu það á Anfield í gær.

Why did Manchester City take inflatable bananas to Anfield? ???? https://t.co/0RCLeJqR3H
— Match of the Day (@BBCMOTD) October 11, 2026
????| A BBC News Report on inflatable Bananas | March 1989
— City Chief (@City_Chief) June 12, 2020
#ManCity | #MCFC
https://t.co/8kjz90i4vV

Mynd: EPA
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |