Fotbolti.net
12.10.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Bernal orðaður við Liverpool - Endrick gæti farið til Villa á láni

Marc Bernal er orðaður við Liverpool.

Marc Bernal er orðaður við Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Liðin helgi bauð heldur betur upp á fótboltahlaðborð og veislan heldur áfram út vikuna því Meistaradeildin og fleira verður á boðstólnum. Hér er slúðurpakki dagsins.
Liverpool íhugar að reyna að fá Marc Bernal (19), miðjumann Barcelona og spænska landsliðsins. (Fichajes)

Orðrómur hefur verið á kreiki um að Julian Nagelsmann, fyrrum landsliðsþjálfari Þýskalands, gæti snúið aftur til RB Leipzig, en Roger Schmidt, yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull, hefur vísað þeim sögusögnum á bug og lýst yfir stuðningi við núverandi stjóra liðsins, Martin Demichelis. (Sky Sports Þýskalandi)

Aston Villa hyggst reyna að fá brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) á láni frá Real Madrid í janúar. (Football Insider)

Arsenal, Aston Villa og Newcastle United hafa öll áhuga á norska sóknarmanninum Antonio Nusa (21) en RB Leipzig setur 60 milljóna punda verðmiða á hann. (Ekrem Konur)

Enski sóknarmaðurinn Dominic Solanke (29) hefur engin áform um að yfirgefa Tottenham, þrátt fyrir að félagið hyggist styrkja sóknarlínuna í janúar. (Football Insider)

Aston Villa gæti lagt fram 18 milljóna punda tilboð í Kevin Viveros (26), sóknarmann Athletico Paranaense og kólumbíska landsliðsins. (RTI Esporte)

Everton sýnir Esteban Lepaul (26), sóknarmanni Rennes, mestan áhuga, þótt Aston Villa, Brentford, Brighton og Leeds United fylgist einnig með þessum franska leikmanni. (Teamtalk)
Fer Endrick til Aston Villa?

Fer Endrick til Aston Villa?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.