Guðrún um Eiríksdætur: „Þær eiga það til að metast svolítið“

Guðrún Arnardóttir segir systurnar Örnu og Hlín Eiríksdætur eiga það til að metast sín á milli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur skoruðu samanlagt þrjú mörk í 0-4 sigri Íslands gegn Króatíu í fyrri leik liðanna.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guðrún Arnardóttir segir systurnar Örnu og Hlín Eiríksdætur eiga það til að metast sín á milli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Arnardóttir segir að systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur eigi það til að metast sín á milli og vonast til að það hjálpi þeim að verða enn betri leikmenn.

Guðrún hefur engar áhyggjur þótt Ísland sæki á mörgum mönnum
Systurnar áttu stóran þátt í 4-0 sigri Íslands á Króatíu á föstudaginn. Arna byrjaði sinn fyrsta A-landsleik og skoraði tvö mörk, systir hennar Hlín bætti svo við einu.
Guðrún var afar ánægð með frammistöðu Örnu, sem lék með henni í varnarlínunni.
„Það er náttúrulega frábært og geggjað að mörkin komi. Frábært hjá Örnu að setja tvö í, er þetta ekki fyrsti byrjunarliðsleikurinn hennar?“
Guðrún var spurð hvort einhver pressa væri nú komin á Hlín að skora fleiri mörk en yngri systir hennar í seinni leiknum.
„Ég held að það sé ekki pressa en það er samkeppni á milli systranna. Þær eiga það til að metast svolítið og hafa gaman af því.“
„Vonandi er það bara til að hjálpa þeim að þrýsta hvor annarri áfram og verða betri.“
Ísland tekur á móti Króatíu á Laugardalsvellinum á morgun, þriðjudag, klukkan 17:30 í seinni leik liðanna í umspilinu um sæti á Heimsmeistaramótið í Brasilíu á næsta ári.

Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur skoruðu samanlagt þrjú mörk í 0-4 sigri Íslands gegn Króatíu í fyrri leik liðanna.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
