Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 12. nóvember 2021 13:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Landsliðshópurinn: Natasha og Ída í hópnum
Icelandair
Ída Marín
Ída Marín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Natasha
Natasha
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson hefur tilkynnt landsliðshópinn fyrir komandi leiki kvennalandsliðsins. Ísland mætir Japan í vináttuleik í Almere í Hollandi 25. nóvember og Kýpur í undankeppni HM 2023 30. nóvember á Kýpur.

Ísland og Kýpur mættust á Laugardalsvelli í október og vann Ísland þann leik 5-0. Ísland er í öðru sæti riðilsins með sex stig eftir þrjá leiki á meðan Kýpur er án stiga á botni riðilsins eftir að hafa leikið fjóra leiki. Holland situr á toppi riðilsins með tíu stig eftir fjóra leiki.

Natasha Anasi og Ída Marín Hermannsdóttir koma inn í hópinn frá síðasta verkefni. Berglind Rós Ágústsdóttir glímir við meiðsli og er því ekki með.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir er þá ekki í hópnum. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Elín Metta Jensen glíma áfram við meiðsli og Selma Sól Magnúsdóttir sem kom inn í síðasta hóp er áfram í hópnum.

Hópurinn:
Sandra Sigurðardóttir - Valur - 38 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Örebro - 4 leikir
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik
Elísa Viðarsdóttir - Valur - 42 leikir
Guðný Árnadóttir - AC Milan - 13 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 95 leikir, 6 mörk
Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga - 40 leikir
Guðrún Arnardóttir - Rosengard - 12 leikir
Sif Atladóttir - Kristianstads DFF - 83 leikir
Hallbera Guðný Gísladóttir - AIK - 121 leikur, 3 mörk
Natasha Moraa Anasi - Keflavík - 2 leikir
Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 95 leikir, 32 mörk
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Orlando Pride - 82 leikir, 12 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir - Eintracht Frankfurt - 17 leikir, 3 mörk
Karitas Tómasdóttir - Breiðablik - 6 leikir
Selma Sól Magnúsdóttir - Breiðablik - 15 leikir, 1 mark
Ída Marín Hermannsdóttir - Valur
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayern Munich - 11 leikir, 4 mörk
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Hammarby - 55 leikir, 7 mörk
Agla María Albertsdóttir - Breiðablik - 40 leikir, 3 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir - Kristianstads DFF - 11 leikir, 4 mörk
Svava Rós Guðmundsdóttir - Girondins Bordeaux - 28 leikir, 2 mörk
Amanda Jacobsen Andradóttir - Valerenga - 2 leikir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner