Fotbolti.net
12.11.26 - 15:28
Snæbjört Pálsdóttir

Endurkoma Guðnýjar - Steini sáttur við formið

Guðný er aftur í landsliðshópnum eftir rúmlega árs fjarveru

Guðný er aftur í landsliðshópnum eftir rúmlega árs fjarveru

Canon

Mynd: Guðný Árnadóttir/Instagram

Kvennalandslið

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, er ánægður með form Guðnýjar Árnadóttur og þann spiltíma sem hún hefur fengið með Kristianstad undanfarnar vikur.

Guðný er komin aftur í landsliðshópinn eftir að hafa eignast barn í apríl sl. og er valin fyrir umspilsleikina gegn Portúgal. Guðný hefur fengið góðan spiltíma með sænska liðinu Kristianstad frá því að hún snéri aftur á völlinn.

„Guðný hefur litið vel út,“ sagði Þorsteinn á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður út í endurkomu hennar.

Hann sagði hana hafa spilað mikið og að endurkoman hefði gengið áfallalaust.

„Ég er bara mjög sáttur við formið á henni og spiltímann sem hún hefur verið að fá.“

Guðný kemur inn fyrir Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur og er það eina breytingin frá síðasta landsliðshópi. Hún á að baki 43 A-landsleiki. 

Ísland mætir Portúgal á útivelli 1. desember og á Laugardalsvelli 5. desember. Sigurliðið tryggir sér sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.