Fotbolti.net
12.11.26 - 15:32
Snæbjört Pálsdóttir

Steini treystir því að völlurinn verði góður í desember

Úrslit einvígis Íslands og Portúgals ráðast á Laugardalsvelli 5. desember.

Úrslit einvígis Íslands og Portúgals ráðast á Laugardalsvelli 5. desember.

Canon

Mynd: KSÍ

Kvennalandslið

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, er bjartsýnn á að aðstæður á Laugardalsvelli verði góðar þegar Ísland tekur á móti Portúgal 5. desember í úrslitaeinvígi um sæti á HM.

Á blaðamannafundi í dag var Steini spurður út í það að svo mikilvægur heimaleikur væri á dagskrá í desember.

Hann vísaði til ráðstafana sem gerðar hefðu verið til að bæta aðstæður á vellinum og sagðist treysta því að völlurinn yrði góður. Allt yrði gert til að aðstæður yrðu sem bestar.

Hann tók þó fram að veðrið væri utan þeirra stjórnunar. Liðið þyrfti að undirbúa sig vel og vera tilbúið að takast á við þær aðstæður sem kæmu upp, bæði innan vallar og utan.

Fyrri leikur einvígisins fer fram í Portúgal 1. desember. Fjórum dögum síðar, laugardaginn 5. desember ræðst á Laugardalsvelli hvort íslenska kvennalandsliðið tryggi sér sæti á heimsmeistaramóti í fyrsta sinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.