Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. janúar 2022 22:12
Brynjar Ingi Erluson
White: Stórkostleg frammistaða
Ben White í baráttunni í leiknum í kvöld
Ben White í baráttunni í leiknum í kvöld
Mynd: EPA
Ben White, varnarmaður Arsenal, hrósaði liðsfélögum sínum í hástert eftir markalausa jafnteflið gegn Liverpool í fyrri undanúrslitaleik enska deildabikarsins á Anfield í kvöld.

Arsenal lék manni færri frá 24. mínútu er Granit Xhaka var rekinn af velli en vörn Arsenal gerði vel í leiknum og hélt leikmönnum Liverpool í skefjum.

Það vantaði leikmenn hjá báðum liðum. Leikmenn eru ýmist í Afríkukeppninni eða í erfiðleikum með Covid-19, en White gat ekki annað en hrósað félögum sínum.

„Þetta var ekki óskabyrjun en það er svo mikil barátta í þessu liði og það var nógu erfitt að koma hingað með ellefu leikmenn. Þetta var stórkostleg frammistaða frá öllum."

„Þú þarft að vera með einbeitingu allan leikinn og úrslitin voru verðskulduð. Það er gott að geta varist svona sem varnarmaður og við komum með mikið sjálfstraust inn í þennan leik og munum gera okkar allra besta í næsta leik,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner