Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. janúar 2023 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tímabilið er búið hjá Van de Beek
Van de Beek meiddist illa gegn Bournemouth.
Van de Beek meiddist illa gegn Bournemouth.
Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Donny van de Beek mun ekki koma meira við sögu á þessari leiktíð.

Hann meiddist illa gegn Bournemouth á dögunum og verður fjarri góðu gamni næstu mánuðina.

Van de Beek hefur fengið fá tækifæri hjá Man Utd frá því hann var keyptur frá Ajax í Hollandi fyrir síðustu leiktíð. Hann fékk þarna tækifæri gegn Bournemouth.

Hann var hins vegar gríðarlega óheppinn því hann meiddist snemma leiks og þurfti að fara af velli.

Meiðslin eru alvarleg og munu halda honum frá keppni út þetta tímabil hið minnsta.

Man Utd mætir Man City í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Athugasemdir
banner
banner