Fotbolti.net
29.06.26 - 14:53
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

Rosenior að fá nýtt starf

Rekinn frá Chelsea í apríl eftir aðeins þrjá mánuði í starfi.

Rekinn frá Chelsea í apríl eftir aðeins þrjá mánuði í starfi.

Canon

Mynd: EPA

Liam Rosenior er að taka við sem nýr stjóri Paris FC. Hann hefur verið án starfs frá því að hann var rekinn sem stjóri Chelsea í apríl.

Antoine Kombouare hefur stýrt Paris frá því í febrúar og er hann samningsbundinn félaginu út næsta tímabil. Eftir erfiða byrjun Parísarliðsins náði Kombouare að snúa slæmu gengi við og endaði liðið í 11. sæti í Ligue 1 á nýlokinni leiktíð sem nýliðar í deildinni.

Franskir fjölmiðlar greina frá því að þrátt fyrir góðan árangur ætlar félagið að skipta honum út fyrir Rosenior.
Þá hefur undirbúningstímabili liðsins verið frestað um nokkra daga vegna fyrirhugaðar ráðningar Rosenior.

Hann þekkir Frakkland vel en áður en hann tók við starfinu hjá Chelsea hafði hann verið stjóri Strasbourg, sem er undir sama eignarhaldi og Chelsea.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.