Sjáðu markið: Brasilíumenn undir í Houston

Kaishu Sano var að koma Japan í forystu

Mynd: EPA

Kaishu Sano var að koma Japan í forystu

Mynd: EPA
Óvæntir hlutir eru að gerast í Houston í Texas-ríki í Bandaríkjunum, en Japan var rétt í þessu að taka forystuna gegn Brasilíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Brasilíumenn höfðu verið meira með boltann án þess þó að skapa mikla hættu fyrir framan mark Japana.
Eftir vatnspásuna fóru Japanir hins vegar að banka á dyrnar og fyrsta markið kom á 29. mínútu.
Danilo átti þá hræðilega sendingu þegar Brasilíumenn voru að keyra fram völlinn. Kaishu Sano hirti boltann, keyrði að marki og lét vaða fyrir utan teig. Skotið fór niðri í vinstra hornið og Alisson átti enga möguleika.
Mjög óvænt byrjun og ef þetta endar svona yrðu þetta án efa óvæntustu úrslit mótsins til þessa.
Sjáðu markið hér