Fotbolti.net
29.06.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kraftröðunin á HM: Fóru upp um 27 sæti

Messi hefur verið svakalegur.

Messi hefur verið svakalegur.

Canon

Mynd: EPA

Fyrr í dag röðuðum við þeim liðum sem eru fallin út á HM frá því veikasta til hins sterkasta. Núna skoðum við þau lið sem eftir eru í sérstakri kraftröðun Fótbolta.net. Hvaða lið er það sterkasta á mótinu þegar riðlakeppnin er búin og 32-liða úrslitin framundan.
Hvað var versta liðið á HM?
TENGT EFNI

Hvað var versta liðið á HM?

32. Suður-Afríka (upp um 9 sæti)
Reyndar eina liðið á þessum lista sem er dottið út. Náðu að rífa sig upp eftir erfiðan fyrsta leik en féllu úr leik í gærkvöldi gegn Kanada í fyrsta leik 32-liða úrslitanna.

31. Paragvæ (á sama stað)
Litu hræðilega út í fyrsta leiknum gegn Bandaríkjunum en náðu að svara því ágætlega. Munu eflaust lenda í vandræðum í kvöld gegn Þýskalandi.

30. Kongó (upp um sex sæti)
Yoane Wissa hefur sýnt meira á þessu móti en hann gerði allt síðasta tímabil með Newcastle. Verður gaman að sjá hvort þeir geti gefið Englandi eins erfiðan leik og þeir gáfu Portúgal.

29. Senegal (niður um 16 sæti)
Það hefur einhvern veginn allt verið í rugli hjá Senegal á þessu móti. Utan vallar er illa haldið utan um liðið og það hefur skilað sér inn á völlinn á augnablikum. Voru út á þekju gegn Noregi til dæmis en komust áfram með stórsigri gegn Írak. Eiga ekki séns gegn Belgíu ef þeir spila eins og gegn Noregi. Maður bjóst við meiru af þeim fyrir mótið.

28. Bosnía og Hersegóvína (upp um 6 sæti)
Bosnía er með sterka liðsheild og spennandi vængmenn í Kerim Alajbegovic og Esmir Bajraktarevic, en samanlagt eru þeir yngri en fyrirliði þeirra Edin Dzeko. Geta þeir strítt Bandaríkjamönnum?

27. Alsír (upp um 5 sæti)
Riyad Mahrez mætti til leiks í lokaleik riðlakeppninnar og hann þarf að stíga enn frekar upp gegn Sviss.

26. Gana (upp um 7 sæti)
Sýndu frábæra varnarvinnu gegn Englandi og hefðu með smá heppni þar getað tekið sigur.

25. Svíþjóð (á sama stað)
Þeir unnu 5-1 sigur í riðlinum en töpuðu líka 5-1. Verður líklega hent út af Frökkum í næstu umferð.

24. Ástralía (upp um 11 sæti)
Tvö mörk skoruð, tvö fengin á sig, sigur, jafntefli og tap. Eru mjög miðlungs eitthvað en eru þó betri en áætlað var fyrir mót.

23. Ekvador (niður um 7 sæti)
Það voru margir sem tippuðu á það að Ekvador myndi koma á óvart á þessu móti. Þeir unnu Þýskaland, sem voru þegar komnir áfram, í lokaleik riðilsins en annars var frammistaðan alls ekki nógu góð. Sigurinn gegn Þýskalandi gefur þó jákvæð fyrirheit.

22. Kanada (upp um 7 sæti)
Kanadamenn hafa átt góð augnablik og slæm augnablik á þessu mótið. Sigurmarkið gegn Suður-Afríku í 32-liða úrslitunum í gær var þeirra besta augnablik á mótinu til þessa.

21. Austurríki (niður um 1 sæti)
Voru næstum því farnir heim áður en Sasa Kalajdzic skoraði á 96. mínútu gegn Alsír. Verður fróðlegt að sjá hvernig þeim vegna gegn Spánverjum.

20. Egyptaland (upp um 3 sæti)
Þeir náðu í sinn fyrsta sigur í lokakeppni HM, 92 árum eftir að þeir tóku í fyrsta sinn þátt. Það er vonandi fyrir Egypta að Mohamed Salah sé ekki illa meiddur.

19. Grænhöfðaeyjar (upp um 27 sæti)
Saga mótsins og það breytist líklega ekkert. Þvílíkt lið sem hefur unnið hug og hjörtu heimsbyggðarinnar með sinni frammistöðu.

18. Japan (niður um 4 sæti)
Japanarnir náðu jafntefli gegn bæði Svíþjóð og Holland í riðlinum. Eru með skemmtilegt lið sem gaman er að horfa á, en vegferð þeirra á mótinu mun líklega enda gegn Brasilíu.

17. Belgía (niður um 8 sæti)
Voru alls ekki sannfærandi í riðlinum og eiga eftir að finna sitt besta form.

16. Króatía (niður um 6 sæti)
Voru ekki góðir gegn Englandi og lentu í smá basli með Panama í leiknum þar á eftir. Það er hins vegar mikil reynsla í liðinu og þeir kláruðu dæmið gegn Gana þegar á þurfti að halda.

15. Sviss (upp um 9 sæti)
Byrjuðu hægt gegn Katar en komu sér svo í gang í næstu tveimur leikjum á eftir. Johan Manzambi er leikmaður sem hefur sprungið út á mótinu.

14. Fílabeinsströndin (upp um 5 sæti)
Spiluðu virkilega vel gegn Þýskalandi og voru óheppnir að fá ekki neitt úr þeim leik. Kantmennirnir þeirra eru helsta vopnið.

13. Marokkó (niður um 1 sæti)
Spiluðu frábærlega í fyrri háflleiknum gegn Brasilíu og leystu sitt verkefni fagmannlega gegn Skotlandi. Eru áfram helsta von Afríku á mótinu.

12. Bandaríkin (upp um 9 sæti)
Komu skemmtilega á óvart í fyrsta leiknum þegar þeir rúlluðu yfir Paragvæ. Töpuðu hins vegar taktinum smá. Bandaríska þjóðin er að fara fram úr sér en þeirra bíður erfitt verkefni gegn Bosníu.

11. Portúgal (niður um 5 sæti)
Cristiano Ronaldo er svo langt frá því að vera leikmaðurinn sem hann einu sinni var en Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Portúgals, þorir ekki að skipta honum út af. Stjörnurnar á miðsvæðinu þurfa að gera miklu, miklu betur.

10. Noregur (upp um 1 sæti)
Erling Haaland og Martin Ödegaard spiluðu frábærlega í riðlakeppninni en misstu þeir taktinn með því að hvíla í síðasta leiknum gegn Frakklandi? Norsku stuðningsmennirnir munu reyna að róa bátnum áfram.

9. Kólumbía (upp um 9 sæti)
Komu skemmtilega á óvart í riðlinum og hefðu átt að vinna Portúgal í lokaleiknum. Kólumbíumenn eru miklu bjartsýnni núna en áður en mótið hófst.

8. Þýskaland (niður um 1 sæti)
Þjóðverjarnir skoruðu sjö í fyrsta leiknum gegn Curacao en náðu annars ekki að heilla neitt sérstaklega í riðlinum.

7. Mexíkó (upp um upp 8 sæti)
Bestu gestgjafarnir á mótinu. Fóru létt í gegnum riðilinn sinn og hafa ekki enn fengið á sig mark.

6. Holland (upp um 2 sæti)
Fóru illa með Túnis og Svíþjóð eftir jafntefli í fyrsta leik gegn Japan. Brian Brobbey er að búa sér til enn stærra nafn. Verður áhugavert að sjá hvernig þeim vegnar gegn Marokkó í 32-liða úrslitum, mögulega áhugaverðasti leikurinn á því stigi keppninnar.

5. England (niður um 1 sæti)
Englendingar byrjuðu mótið af krafti en það hægðist svo á þeim. Það eru áhyggjur af vörninni og svo hefur gengið illa að brjóta niður varnarsinnuð lið. Ættu þó að geta farið í gegnum Kongó.

4. Brasilía (upp um 1 sæti)
Lentu í veseni með Marokkó en unnu svo tvo 3-0 sigra. Vinícius Júnior búinn að vera flottur og hann þarf að vera það áfram.

3. Spánn (niður um 1 sæti)
Litu hrikalega illa út í fyrsta leik gegn Grænhöfðaeyjum, hægt og leiðinlegt. Betra gegn Sádi-Arabíu og sýndu fagmennsku gegn Úrúgvæ. Treysta rosalega mikið á Lamine Yamal og hann þarf að vera heill.

2. Argentína (upp um 1 sæti)
Lionel Messi, 39 ára gamall, er í ótrúlegum gír og það er ekki gott fyrir hin liðin.

1. Frakkland (á sama stað
Kylian Mbappe er líka í miklum gír og hann er með magnaða leikmenn í kringum sig. Frakkar eru líklegastir eins og staðan er núna.
Kerim Alajbegovic í leik með Bosníu.

Kerim Alajbegovic í leik með Bosníu.

Canon

Mynd: EPA

Svíþjóð vann 5-1 og tapaði 5-1 í riðlakeppninni.

Svíþjóð vann 5-1 og tapaði 5-1 í riðlakeppninni.

Canon

Mynd: EPA

Kanada varð fyrsta liðið til að komast áfram í 16-liða úrslitin.

Kanada varð fyrsta liðið til að komast áfram í 16-liða úrslitin.

Canon

Mynd: EPA

Grænhöfðaeyjar, þvílíkt lið og þvílík saga.

Grænhöfðaeyjar, þvílíkt lið og þvílík saga.

Canon

Mynd: EPA

Johan Manzambi, besti leikmaður Sviss á mótinu.

Johan Manzambi, besti leikmaður Sviss á mótinu.

Canon

Mynd: EPA

Bandaríska þjóðin er að fara fram úr sér.

Bandaríska þjóðin er að fara fram úr sér.

Canon

Mynd: EPA

Ronaldo leiðir línuna hjá Portúgal.

Ronaldo leiðir línuna hjá Portúgal.

Canon

Mynd: EPA

Haaland var frábær í riðlakeppninni.

Haaland var frábær í riðlakeppninni.

Canon

Mynd: EPA

Mexíkó vann alla leiki sína í riðlakeppninni.

Mexíkó vann alla leiki sína í riðlakeppninni.

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane og Jude Bellingham eru mikilvægir fyrir Englendinga.

Harry Kane og Jude Bellingham eru mikilvægir fyrir Englendinga.

Canon

Mynd: EPA

Vinicius hefur leikið vel með Brasilíu.

Vinicius hefur leikið vel með Brasilíu.

Canon

Mynd: EPA

Messi er orðinn markahæstur í sögu HM.

Messi er orðinn markahæstur í sögu HM.

Canon

Mynd: EPA

Yamal er mikilvægur fyrir Spánverja.

Yamal er mikilvægur fyrir Spánverja.

Canon

Mynd: EPA

Mbappe er búinn að vera í gír.

Mbappe er búinn að vera í gír.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.