Fotbolti.net
29.06.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segir að dæma megi mark og rautt en tækling Bjarna hafi ekki verið svo gróf

Ingimar í jörðinni eftir að hann skoraði. Þórsarar vildu að Bjarna yrði refsað.

Ingimar í jörðinni eftir að hann skoraði. Þórsarar vildu að Bjarna yrði refsað.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Þegar Ingimar Arnar Kristjánsson minnkaði muninn fyrir Þór gegn Val í leik liðanna í gær var hann tekinn niður af Valsaranum Bjarna Mark Antonssyni. Ingimar féll til jarðar en var búinn að klára skotið sitt og boltinn fór í netið á Valsmarkinu. Bjarni fékk gult spjald fyrir brotið.

Ingimar lenti illa og þurfti ekki löngu síðar að fara af velli vegna meiðslanna.

Í viðtali eftir leik var Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, á því að Bjarni hefði jafnvel átt að fá rautt spjald fyrir tæklinguna.

Fótbolti.net heyrði í Þóroddi Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, og spurt var hvort það hefði getað orðið niðurstaðan í þessu tilviki. Ekki er algengt að sjá rautt spjald fara á loft fyrir leikbrot þegar mörk eru skoruð.
Siggi Höskulds: Ég held að þetta sé mark og rautt
TENGT EFNI

Siggi Höskulds: Ég held að þetta sé mark og rautt

Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 Valur
„Já, það er hægt að lyfta rauðu spjaldi þó að mark sé skorað," segir Þóroddur.

„Ef framið er leikbrot á leikmanni sem er að skjóta á markið og skorar, en brotið á honum er þannig að brotið sjálft verðskuldar rautt spjald út af alvarlega grófum leik, þá já, það myndi standa sem rautt. Eins ef leikmaður færi t.d. með olnboga í háls andstæðings sem væri að skjóta í markið, ofbeldisfull hegðun, þá yrði sá leikmaður alltaf rekinn út af."

„Brotið í gær, ég er ekki á því að það eigi að vera rautt. Það er bara skeytingarlaus tækling, brot og gult. Þó að boltinn hefði ekki farið í markið, þá finnst mér þetta ekki vera rautt spjald."


Ingimar Arnar slapp í gegn eftir mistök Valsara í gær og Bjarni reyndi að koma í veg fyrir mark. Bjarni hljóp að Ingimar, reyndi að tækla en áði ekki að komast fyrir skotið og tæklaði Ingimar niður. Atvikið má sjá eftir 2 mínútur og 10 sekúndur í spilaranum hér að neðan.

„Hann er ekki hátt með lappirnar, er ekki með beinan fót og hendir sér ekki á rassinn. Það eru svo margar kríteríur sem hann tikkar ekki í. Ef hann væri með fótinn hátt og lendir fyrir ofan kúlu, þá mögulega værum við að tala um rautt, ef hann væri með beinan fót, þá gæti það líka verið rautt."

„Við skoðuðum tæklinguna hjá Karli Friðleifi á Fred gegn Fram. Sú tækling var á grensunni og við hefðum stutt bæði gult og rautt spjald þar. Þar var fóturinn hátt, beinn fótur og sólinn á undan. En mér finnst Bjarni vera tiltölulega lágt með löppina, er greinilega að reyna við boltann. Mín túlkun er að þetta sé vond tækling og niðurstaðan eigi að vera gult spjald."


En er Bjarni ekki aftasti maður?

„Jú, en það breytir engu þar sem þetta atvik er inn í vítateig og hann telst alltaf vera að reyna við boltann. Þar með yrði þetta víti og gult en ekki víti og rautt þar sem túlkunin er ekki alvarlega grófur leikur."

„Sama brot fyrir utan teig og ekkert mark skorað yrði þá aukaspyrna og rautt spjald fyrir að ræna augljósu marktækifæri,"
segir Þóroddur og ítrekar:

„Það er vissulega alveg hægt samkvæmt reglunum að skora og andstæðingurinn fái rautt, en það þarf að uppfylla þau skilyrði að vera alvarlega grófur leikur eða ofsafengin framkoma."

Siggi vildi fá eitthvað meira.

Siggi vildi fá eitthvað meira.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Ármann Hinrik tók þessar frábæru myndir í gær og eru myndirnar birtar með hans leyfi.

Ármann Hinrik tók þessar frábæru myndir í gær og eru myndirnar birtar með hans leyfi.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Segir að dæma megi mark og rautt en tækling Bjarna hafi ekki verið svo gróf
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Segir að dæma megi mark og rautt en tækling Bjarna hafi ekki verið svo gróf
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Segir að dæma megi mark og rautt en tækling Bjarna hafi ekki verið svo gróf
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.