Fotbolti.net
29.06.26 - 14:28
Elvar Geir Magnússon

Maresca greiðir Chelsea líka bætur persónulega

Enzo Maresca.

Enzo Maresca.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Maresca var í dag kynntur sem nýr stjóri Manchester City. Athygli vakti þegar Maresca hætti hjá Chelsea í desember síðastliðnum.

Maresca var ekki búinn með samning sinn hjá Chelsea og því þurfti City að ná samkomulagi við félagið. Það er í höfn og Maresca búinn að skrifa undir þriggja ára samning. Samkvæmt frétt BBC borgar City um 17 milljónir punda til Chelsea.
Maresca kynntur hjá Man City (Staðfest)
TENGT EFNI

Maresca kynntur hjá Man City (Staðfest)

Að auki segir Chelsea að Maresca persónulega borgi félaginu bætur og sú greiðsla sé aðskilin þeirri sem kemur frá Manchester City. Ekki er vitað hversu há upphæðin sem Maresca greiðir er.

Í yfirlýsingu frá Chelsea kemur fram að Maresca hafi sagt starfi sínu lausu í desember þrátt fyrir að vera með samning sem hann hafi ekki getað rift sjálfur. Því borgar hann félaginu bætur.

Í sömu yfirlýsingu segir að Maresca hafi tilkynnt Chelsea í desember að það tækifæri gæti mögulega boðist fyrir hann að taka við Manchester City af Pep Guardiola. Hugur hans hafi því verið kominn annað þegar hann sagði upp.
Maresca greiðir Chelsea líka bætur persónulega
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.