Alveg sama um hvað Lineker finnst um Þýskaland

Kai Havertz

Mynd: EPA

Kai Havertz

Mynd: EPA
Fjölmiðlamaðurinn Gary Lineker er ekki hrifinn af þýska landsliðinu og býst ekki við miklu frá þeim á HM.
„Þýskaland lifir í fortíðinni. Gleymum því ekki að þeir komust ekki upp úr riðlinum á síðustu tveimur heimsmeistaramótum. Þetta er eitt slakasta þýska lið sem ég hef séð," sagði Lineker.
Þýskaland mætir Paragvæ í 32-liða úrslitum í kvöld og mun mæta sigurvegaranum úr Frakkland - Svíþjóð í 16-liða úrslitum.
„Frakkland ætti að komast auðveldlega í 8-liða úrslitin," sagði Lineker.

Kai Havertz, sóknarmaður þýska liðsins, var á fréttamannafundi spurður út í þessi ummæli.
„Allir eiga rétt á sinni skoðun en þessi ummæli fóru framhjá mér. Þegar þú tekur þátt í svona mótum þá eru margir að fara að tala um þig. Við erum ekki mikið að spá í þessu. Það er alltaf auðvelt að standa fyrir utan og gagnrýna en þetta truflar mig ekkert," segir Havertz.