Jón Þór um Alpha Conteh: Engin ákvörðun verið tekin

Hefur leikið vel með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Alpha Conteh er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni og hefur leikið vel með Keflvíkingum í leikjunum sex sem hann hefur tekið þátt í. Hann kom sprækur inn sem varamaður gegn Víkingi í fyrsta leik og hefur í kjölfarið byrjað fimm leiki.
Hann lagði upp mark gegn ÍA og Val og skoraði svo sitt fyrsta mark á Íslandi í gær, skoraði sigurmarkið gegn KR undir lok leiks.

Einhverjir hafa velt því fyrir sér hvort að Stjarnan muni kalla kantmanninn frá Síerra Leóne til baka úr láni í glugganum og Fótbolti.net spurði Jón Þór Hauksson, þjálfara Stjörnunnar, út í það í dag.
„Það er möguleiki. Það eru mörg samtöl tekin á hverjum degi. Við erum að fara yfir stöðuna en engin ákvörðun verið tekin," segir Jón Þór.
Alpha Conteh er 26 ára og kom til Stjörnunnar í sumarglugganum í fyrra eftir að hafa spilað með FK Neftchi í Aserbaísjan. Glugginn opnar 16. júlí.