Salah tæpur fyrir 32-liða úrslitin

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mohamed Salah er tæpur fyrir leik Egyptalands gegn Ástralíu í 32-liða úrslitum HM en leikurinn verður á föstudag.
Salah, sem er 34 ára, var tekinn af velli í 1-1 jafntefli Egyptalands gegn Íran og í yfirlýsingu frá egypska sambandinu kom fram að hann væri kominn í meðhöndlun vegna meiðsla aftan í læri.
Ekkert kemur fram í yfirlýsingunni hvort Salah verði klár fyrir leikinn gegn Ástralíu.

Hossam Hassan landsliðsþjálfari Egyptalands sagði strax eftir leikinn gegn Íran að meiðslin væru ekki alvarleg.
Salah var frá í þrjár vikur á liðnu tímabili með Liverpool eftir að hafa meiðst aftan í læri. Hann er með eitt mark og tvær stoðsendingar á HM en Egyptaland endaði í öðru sæti í sínum riðli.