Fotbolti.net
13.02.21 - 20:26
Victor Pálsson

Guardiola: Við unnum frábært lið

Guardiola: Við unnum frábært lið
Canon

Mynd: Getty Images

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var hæstánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld er liðið vann Tottenham sannfærandii 3-0.
Ilkay Gundogan hélt áfram að skora mörk í viðureign kvöldsins en hann kom boltanum tvívegis í netið og gerði Rodri fyrsta markið á vítapunktinum.

Guardiola hrósaði varnar og sóknarvinnu liðsins í kvöld og segist hafa verið að vinna frábært lið sem er þjálfað af Jose Mourinho.

„Við unnum frábært lið. Hraðinn þeirra þegar þú tapar boltanum með Heung-Min Son og Harry Kane.." sagði Guardiola.

„Þeir skutu í stöngina og það hefði getað breytt leiknum. Svo fékk Gareth Bale færi en það var ekki meira en það og það var gott varnarlega séð."

„Varðandi hvernig við vorum með boltann þá var það mjög gott. Sérstaklega í seinni hálfleik en þetta var annar sigur gegn góðu liði og við höldum áfram góðum takti."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.