Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 13. apríl 2019 12:55
Arnar Helgi Magnússon
Þýskaland: Guðlaugur spilaði í sigri - Rúrik ekki í hóp
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliði Darmstad sem að mætti Magdeburg í þýsku annarri deildinni í dag.

Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en á 87. mínútu leiksins kom sigurmarkið og það var Marcel Heller, leikmaður Darmstad, sem að gerði það.

Guðlaugur Victor lék því allan leikinn í 0-1 útisigri. Darmstad siglir lygnan sjó um miðja deild.

Rúrik Gíslason var ekki í leikmannahópi Sandhausen þegar liðið mætti Dynamo Dresden. Hann er að glíma við smávægileg meiðsli í kálfa.

Leiknum lauk með 3-1 sigri Sandhausen og er útlitið orðið mun betra en það var fyrir nokkrum vikum síðan og allar líkur eru á því að Sandhausen haldi sér uppi.
Athugasemdir
banner
banner