Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
banner
föstudagur 17. apríl
Besta deildin
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 13. apríl
Úrvalsdeildin
Man Utd - Leeds - 19:00
Serie A
Fiorentina - Lazio - 18:45
La Liga
Levante - Getafe - 19:00
mán 13.apr 2026 17:00 Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 11. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í næst neðsta sæti í spánni er Ægir úr Þorlákshöfn.

Ægir fagnar marki síðasta sumar.
Ægir fagnar marki síðasta sumar.
Mynd/Helgi Þór Gunnarsson
Nenad Zivanovic er þjálfari Ægis.
Nenad Zivanovic er þjálfari Ægis.
Mynd/Tómas Freyr Kristjánsson
Jordan Adeyemo var besti leikmaður 2. deildar í fyrra.
Jordan Adeyemo var besti leikmaður 2. deildar í fyrra.
Mynd/Ægir
Stefan Dabetic er mikilvægur í vörninni.
Stefan Dabetic er mikilvægur í vörninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Pétur gekk í raðir Ægis í vetur.
Sigurður Pétur gekk í raðir Ægis í vetur.
Mynd/Helgi Þór Gunnarsson
Harley Willard er mættur í Þorlákshöfn.
Harley Willard er mættur í Þorlákshöfn.
Mynd/Ægir
Alfredo Sanabria kom frá Selfossi.
Alfredo Sanabria kom frá Selfossi.
Mynd/Ægir
Sigurpáll Sören verður í markinu.
Sigurpáll Sören verður í markinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Ægismenn í sumar?
Hvað gera Ægismenn í sumar?
Mynd/Tómas Freyr Kristjánsson
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig

11. Ægir
Ægismenn úr Þorlákshöfn eru mættir aftur í Lengjudeildina eftir tveggja ára veru í 2. deild. Fyrra tímabilið í 2. deild, 2024, var ekki gott og enduðu þeir í neðri hlutanum en tímabilið í fyrra var mjög sterkt. Þeir komust upp í Lengjudeildina á óvæntan hátt sumarið 2023 þegar Kórdrengir drógu lið sitt úr keppni og voru þá í raun ekki tilbúnir í verkefnið. Núna gerir maður ráð fyrir því að þeir séu meira tilbúnir enda hafa þeir spilað í þessari deild áður og voru virkilega flottir í 2. deild í fyrra. Uppgangur Ægismanna síðustu ár hefur verið nokkuð hraður. Liðið var í 4. deild sumarið 2019 og í neðri hluta 3. deild sumarið 2020. Svo komst liðið í Lengjudeildina fyrir sumarið 2023 en það var kannski of mikið, of fljótt. Hafa menn lært af reynslunni fyrir þetta tímabil?

Þjálfarinn: Nenad Zivanovic er þjálfari Ægis og hefur verið það frá árinu 2019. Þá var liðið í 4. deild en undir hans stjórn hefur Ægir klifrað upp deildirnar, allt þar til 2023 þegar Ægismenn féllu úr Lengjudeildinni. Eftir sumarið 2023 þá skrifaði Nenad undir nýjan tveggja ára samning sem gildir út yfirstandandi tímabil. Nenad er frá Serbíu og er fæddur 1976, en hann átti farsælan feril sem leikmaður í heimalandinu, í Færeyjum og ekki síst hér á Íslandi. Hann spilaði með Breiðabliki en einnig með Fjarðabyggð og Þór. Stöðugleikinn hefur verið gífurlegur í þjálfarastarfinu í Þorlákshöfn og það er svo sannarlega styrkleiki fyrir liðið.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Koma tvíefldir til leiks
„Ægismenn koma tvíefldir til leiks eftir að hafa smakkað á Lengjudeildinni sumarið 2023, í þetta skiptið eftir að hafa unnið 2. deildina en ekki mættir sem hálf óboðnir gestir seint og síðar meir."

„Nenad hefur verið að smíða saman lið sem ætti að verða samkeppnisghæft í deildinni, síðast gaf Ægir hörku leiki þar til blaðran sprakk í restina, Nenad og Ægisliðið verður ekkert lamb að leika við, hvað þá á mottunni í Þorlákshöfn."

„Ægir mun alltaf dansa við neðri hlutann og ekkert óeðlilegt að spá þeim falli, enda klúbbur af þeirri stærðargráðu að Lengjudeildin er stór fyrir þá, þekkjandi samt umhverfið og metnaðinn í Þorlákshöfn þá verður allt lagt í sölurnar í að gera gott mót og halda sætinu í deildinni, ég treysti Nenad og Arnari Loga líka vel fyrir því að draga fram það besta úr leikmannahópnum og sækja þau stig sem þarf til."


Lykilmenn: Jordan Adeyemo og Stefan Dabetic
Ægismenn náðu í Jordan Adeyemo, mjög svo öflugan framherja, fyrir síðasta tímabili. Hann hafði verið að spila í fyrstu deild á Írlandi. Hann sýndi það strax á undirbúningstímabilinu hversu sterkur hann væri og endaði svo á því að vera besti leikmaður 2. deildar. Það var áhugi á honum frá öðrum félögum á Íslandi en hann kaus að halda tryggð við Ægi. Stefan Dabetic er reynslumikill miðvörður sem er búinn að vera hjá Ægi síðan 2019 og er ómissandi fyrir liðið. Hann er hávaxinn og sterkur hafsent frá Serbíu.

Gaman að fylgjast með: Sigurður Pétur Stefánsson
Sigurður Pétur gekk í raðir Ægis frá Kormáki/Hvöt, þar sem hann var fyrirliði, í vetur. Hann skoraði tvö mörk á síðasta tímabili, bæði í Fótbolti.net bikarnum. Annað þeirra var sérstaklega glæsilegt og kom í sigri gegn Magna á Grenivík. Hann var á bekknum í liði ársins í 2. deild í fyrra eftir gott tímabil. Núna tekur hann skrefið upp í Lengjudeildina og verður gaman að fylgjast með honum þar í nýju umhverfi.

Komnir:
Alfredo Ivan Arguello Sanabria frá Selfossi
Harley Willard frá Selfossi
Sigurður Pétur Stefánsson frá Kormáki/Hvöt
Sigurpáll Sören Ingólfsson frá KR á láni
Markús Máni Jónsson frá Víði
Kristinn Ásgeir Þorbergsson frá Árborg
Nikola Kristinn Stojanovic frá Dalvík/Reyni
Benedikt Þór Viðarsson frá Gróttu
Ómar Castaldo Einarsson frá Reyni S.
Gabriel Michael Thull frá Stokkseyri

Farnir:
Ivan Rodrigo Moran Blanco til Gíbraltar
Aron Fannar Hreinsson í Fjölni
Bilal Kamal
Jón Jökull Þráinsson
Elvar Orri Sigurbjörnsson í Selfoss (var á láni)
Guðmundur Stefánsson í Selfoss (var á láni)

Samningslausir:
Dimitrije Cokic
Kristján Daði Runólfsson



Fyrstu þrír leikir Ægis:
24. apríl, Fylkir - Ægir (tekk VÖLLURINN)
1. maí, HK - Ægir (Kórinn)
9. maí, Ægir - Grótta (GeoSalmo völlurinn)
banner