Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
miðvikudagur 27. maí
Lengjudeild karla
fimmtudagur 21. maí
þriðjudagur 5. maí
mánudagur 4. maí
Lengjudeild karla
laugardagur 2. maí
Besta karla
Lengjudeild kvenna
Besta karla
sunnudagur 26. apríl
sunnudagur 24. maí
Úrvalsdeildin
Brighton 0 - 3 Man Utd
Burnley 1 - 1 Wolves
West Ham 3 - 0 Leeds
Fulham 2 - 0 Newcastle
Nott. Forest 1 - 1 Bournemouth
Liverpool 1 - 1 Brentford
Man City 1 - 2 Aston Villa
Tottenham 1 - 0 Everton
Sunderland 2 - 1 Chelsea
Crystal Palace 1 - 2 Arsenal
Serie A
Cremonese 1 - 4 Como
Napoli 1 - 0 Udinese
Parma 1 - 0 Sassuolo
Verona 0 - 2 Roma
Lecce 1 - 0 Genoa
Milan 1 - 2 Cagliari
Torino 2 - 2 Juventus
Eliteserien
Bodö/Glimt 3 - 1 SK Brann
Kristiansund 1 - 2 Viking FK
La Liga
Villarreal 5 - 1 Atletico Madrid
Damallsvenskan - Women
Hacken W 2 - 0 Norrkoping W
Vaxjo W 0 - 2 Vittsjo W
fös 10.apr 2026 18:15 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 12. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í neðsta sæti í spánni er Völsungur frá Húsavík.

Fyrir leik hjá Völsungi síðasta sumar.
Fyrir leik hjá Völsungi síðasta sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrick De Wilde entist ekki lengi á Húsavík.
Patrick De Wilde entist ekki lengi á Húsavík.
Mynd/patrickdewilde.com
Bjarki Baldvinsson er goðsögn hjá Völsungi.
Bjarki Baldvinsson er goðsögn hjá Völsungi.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elfar Árni Aðalsteinsson.
Elfar Árni Aðalsteinsson.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrirliðinn Arnar Pálmi Kristjánsson.
Fyrirliðinn Arnar Pálmi Kristjánsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Juan Guardia er mættur aftur.
Juan Guardia er mættur aftur.
Mynd/640.is - Hafþór Hreiðarsson
Modoumatarr Mbye gekk í raðir Völsungs á dögunum.
Modoumatarr Mbye gekk í raðir Völsungs á dögunum.
Mynd/Völsungur
Miðjumaðurinn Xabi Cardenas verður í stóru hlutverki.
Miðjumaðurinn Xabi Cardenas verður í stóru hlutverki.
Mynd/Völsungur
Hvað gerir Völsungur í sumar?
Hvað gerir Völsungur í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Völsungur, 22 stig

12. Völsungur
Annað sumarið í röð er Völsungi spáð neðsta sæti Lengjudeildarinnar, en fyrir þetta sumar er þeim spáð botninum með enn meiri yfirburðum. Nánast allir þeir sem sendu inn sína spá eru með Völsung í neðsta sæti og það er erfitt að segja annað en að það sé skiljanlegt. Þeir stóðu sig frábærlega á síðasta tímabili og voru í engri fallhættu allt sumarið, komu öllum á óvart og enduðu að lokum í 7. sæti. En núna er staðan önnur. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Alli Jói, hætti sem þjálfari liðsins en hann var ein stærsta ástæðan fyrir þessum magnaða árangri og festan í liðinu. Húsvíkingar hugsuðu út fyrir boxið í þjálfararáðningu en það gekk engan veginn upp og eru þeir í leit að nýjum þjálfara þegar stutt er í mót. Þetta er alls ekki ákjósanleg staða og Völsungur er í slæmri stöðu á leiðinni inn í sumarið. Það hefur líka gengið illa á undirbúningstímabilinu og þurftu þeir að hætta í Lengjubikarnum þar sem þeir náðu ekki í lið. Geta þeir komið öllum aftur á óvart?

Þjálfarinn: Ævintýramanninum Patrick De Wilde var sagt upp störfum hjá Völsungi fyrr í þessari viku eftir að hafa verið ráðinn til að taka við af Alla Jóa í vetur. De Wilde stýrði kvennalandsliði Nepal áður en hann tók við Húsvíkingum, en þar áður var hann við stjórnvölinn hjá karlalandsliðum Sómalíu og Rúanda í Afríku. Hann ætlaði sér stóra hluti á Húsavík en þetta var blanda sem virkaði ekki saman og er Völsungur núna í leit að þjálfara. Þeir Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson munu stýra liðinu til bráðabirgða og spurning hversu lengi þeir stýra liðinu.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á mjög erfiðum og sérstökum stað
„Húsvíkingar koma á mjög erfiðum og sérstökum stað inn í mótið eftir rússíbanareið með Belganum geðuga Patrick De Wilde, sem var bæði ráðinn og svo rekinn á milli tímabilanna, eftir virkilega gott tímabil Völlara í fyrra sem því miður virðast alls ekki hafa náð að nota þann meðbyr til frekari uppbyggingar."

„Elli qta og Bjarki Baldvins taka við liðinu til bráðabirgða hið minnsta, spurning hvort Völsungar finni reynslumeiri þjálfara til þess að sigla þennan ólgusjó með liðið í gegnum Lengjudeildina."

„Völsungar þurfa baráttu, gleði og hjarta í sinn leik til þess að djöflast eitthvað áfram í deildinni, og ætli það sé ekki bara návæmlega það sem Elfar Árni og Bjarki Baldvins geta fengið fram hjá þessum mörgu ungu og uppöldu Völsungsstrákum í bland við erlenda leikmenn."


Lykilmenn: Arnar Pálmi Kristjánsson og Elfar Árni Aðalsteinsson
Arnar Pálmi var einn besti vinstri bakvörður Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og var í raun óheppinn að komast ekki í lið ársins. Hann er fyrirliði Völsungs og gífurlega mikilvægur í baráttuna sem er framundan. Elfar Árni er þá algjör reynslubolti sem getur skorað mikilvæg mörk fyrir Húsvíkinga. Hann sneri aftur heim fyrir síðasta tímabil og skoraði þá sjö mörk í 20 leikjum í Lengjudeildinni. Hann er í dag spilandi þjálfari og spurning hvernig það gengur upp.

Gaman að fylgjast með: Andri V. Bergmann Steingrímsson
Yngsti bróðirinn í hinni frægu Bergmann fótboltafjölskyldu. Strákur sem er fæddur 2008 og kemur til með að fá hlutverk í liðinu hjá Völsungi í sumar. Hann var í treyju númer 10 hjá Völsungi í bikarleik á dögunum og spurning hvort hann muni sýna einhverja takta í líkingu við Hallgrím Mar, bróður sinn, í sumar.

Komnir:
Jeffrey Baltus frá Nepal
Modoumatarr Mbye frá Svíþjóð
Juan Guardia frá Þór
Davíð Leó Lund frá Tindastóli (var á láni)
Ýmir Hjálmsson frá Njarðvík
Javon Jerrod Sample frá Dalvík

Farnir:
Jakob Héðinn Róbertsson í KA
Bjarki Baldvinsson hættur
Elvar Baldvinsson í Þór
Ívar Arnbro Þórhallsson í KA (var á láni)
Ismael Salmi Yagoub til Víkings Ó.f
Sergio Parla Garcia til Spánar
Pétur Orri Arnarson í Þór (var á láni)
Ólafur Jóhann Steingrímsson í Magna
Rafnar Máni Gunnarsson hættur
Einar Ísfjörð Sigurpálsson í Tindastól
Aron Bjarki Jósepsson í KV



Fyrstu þrír leikir Völsungs:
25. apríl, Völsungur - Leiknir R. (GPG völlurinn)
1. maí, Afturelding - Völsungur (Malbikstöðin að Varmá)
9. maí, Völsungur - Þróttur R. (GPG völlurinn)
banner