Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 19:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Blikar unnu Þróttara manni færri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 1 - 2 Breiðablik
0-1 Davíð Ingvarsson ('45 )
0-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('69 )
1-2 Sigurður Egill Lárusson ('94 )
Rautt spjald: Viktor Örn Margeirsson , Breiðablik ('55) Lestu um leikinn

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Breiðablik

Breiðablik er fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir sigur á Þrótti í Laugardal í kvöld.

Leikurinn byrjaði nokkuð rólega en heimamenn voru þó líklegri. Blikar sóttu í sig veðrið þegar leið á fyrri hálfleikinn og Davíð Ingvarsson braut ísinn í blálokin.

Kristófer Ingi Kristinsson átti skot sem Þórhallur Ísak Guðmundsson í marki Þróttar varði út í teiginn. Davíð náði boltanum og skoraði með föstu skoti.

Ívar Örn Árnason, varnarmaður Blika, fékk gult spjald snemma í seinni hálfleik og var tekinn af velli stuttu síðar. Strax í kjölfarið fékk Viktor Örn Margeirsson rautt spjald fyrir ljótt brot á Erni Braga Hinrikssyni. Myndasyrpa af þeirri tæklingu er hér fyrir neðan.

Þrátt fyrir að vera manni færri bætti Kristófer Ingi við öðru marki Blika eftir laglegan undirbúning Ágústs Orra Þorsteinssonar.

Sigurður Egill Lárusson skoraði sárabótamark fyrir Þróttara í blálokin. Óli Valur Ómarsson var kærulaus í öftustu línu og Sigurður Egill náði boltanum af honum og skoraði með frábæru skoti rétt fyrir utan vítateiginn. Nær komust Þróttarar ekki og Breiðablik er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Slapp
banner
banner