Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
   mið 13. maí 2026 21:58
Alexander Tonini
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik gerði góða ferð í laugardalinn í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og unnu Þrótt R. 2-1. Framan af var Þróttur betra liðið en þegar leið á leikinn átti Breiðablik sigurinn skilið.

Var eitthvað stress þegar Sigurður Egill minnkaði muninn í uppbótartíma?

„Já ég hefði nú alveg vilja sleppa þessu ef ég á að vera alveg heiðarlegur. En heilt yfir leið mér bara ágætlega. Mér fannst við vera góðir í fyrri hálfleik. Það tók okkur smá stund að ná taktinum og við hefðum mögulega átt að fara með meira en 1-0 í hálfleik. Svo náttúrulega breytist leikurinn þegar Viktor fær rautt. Mér fannst við tækla það mjög vel og bættum við marki."

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Breiðablik

Stórt atvik átti sér stað á 55. mínútu leiks þegar Viktor Örn Margeirsson fékk að líta rauða spjaldið og það gerðist einungis einni mínútu eftir að Ívari Erni Árnasyni var skipt af velli.

Hvað hugsaði Óli þegar rauða spjaldið fór á loft?

„Það var svo sem ákveðið með Ívar, hann meiddist aðeins í fyrri hálfleik og við vorum búnir að ákveða að taka hann út af í kringum 50-55 mínútur. Auðvitað óheppilegt að þetta kom í kjölfarið en mér fannst við bara tækla þetta vel. Við lokuðum búðinni og hleyptum þeim ekki nálægt markinu okkar."

Ágúst Orri Þorsteinsson sem er 21 árs gamall U-21 landsliðsmaður Íslands hefur verið eftirsóttur af liðum erlendis. Er möguleiki á því að hann fari frá Breiðablik í sumar?

„Já það er alveg klárt mál og möguleiki á því. Við vitum það alveg að það er mikill áhugi á honum. Hann er frábær leikmaður og hefur verið mjög góður í byrjun tímabils. Það er bara eitthvað sem verður að koma í ljós. Við erum mjög ánægðir að hafa Gústa og viljum halda honum eins lengi og hægt er."
Slapp
banner
banner
banner
banner