Óvenju stutt sumarfrí hjá Sverri sem verður ekki með gegn Argentínu

Sverrir Ingi Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sverrir Ingi Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sverrir Ingi Ingason er í landsliðshópnum sem mætir Japan í lok mánaðar en verður ekki með í leiknum gegn Argentínu í Alabama 10. júní.
Sverrir, sem hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár, leikur með Panathinaikos. Hann klárar tímabilið með gríska liðinu í lok mánaðar en liðið kemur aftur saman um mitt sumar og spilar í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Tveir landsliðshópar valdir - Ögmundur og Viktor Bjarki fara til Japans
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í fjarveru Sverris gegn Argentínu á blaðamannafundi í hádeginu.
„Eftir samtal við hann og félagið hans var þetta niðurstaðan. Sumarfríið hans verður óvenju stutt núna eftir árangur Panathinaikos, þar sem liðið fer í Sambandsdeildina.
Þarna var hagur leikmannsins hafður að leiðarljósi. Við töldum betra að hann kæmi með okkur til Japans og sleppti leiknum við Argentínu til þess að gera hann sem best kláran fyrir haustið,“ sagði Arnar á blaðamannafundi landsliðsins fyrr í dag.