Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins, opinberaði í dag landsliðshópa fyrir komandi vináttuleiki gegn Japan og Argentínu ytra. Ísland mætir fyrst Japan í Tókýó 31. maí og spilar svo gegn Argentínu í Alabama 10. júní í Bandaríkjunum. Bæði Japan og Argentína eru að undirbúa sig fyrir HM í sumar og verður leikurinn gegn Íslandi síðasti leikur Argentínu fyrir mótið. Báðir leikir Íslands verða sýndir á SÝN.
Leikurinn gegn Japan er spilaður utan landsleikjaglugga og því var ekki hægt að velja leikmenn úr öllum deildum Evrópu og ákveðið að velja sitthvorn hópinn. Tíu leikmenn fara í báða leikina.
Það vekur athygli að Ögmundur Kristinsson er á meðal leikmanna sem fara til Japan. Hann hefur ekkert spilað með Val á tímabilinu. Framherjarnir Viktor Bjarki Daðason, Benoný Breki Andrésson og Stefán Ingi Sigurðarson gætu spilað sinn fyrsta landsleik í Japan en þeir fara ekki í seinni leikinn.
Albert Guðmundsson snýr aftur í landsliðið fyrir leikinn gegn Argentínu en þeir Sverrir Ingi Ingason og Aron Einar Gunnarsson fara ekki til Bandaríkjanna. Mikael Neville Anderson, sem hefur glímt við meiðsli, er ekki valinn. Gísli Gottskálk Þórðarson og Daníel Tristan Guðjohnsen koma inn í A-landsliðið eftir að hafa spilað með U21 liðinu í síðasta glugga. Gísli fer í báða leikina en Daníel fer einungis í seinni leikinn.

Hópurinn gegn Japan
Markverðir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir
Útileikmenn
Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 66 leikir, 4 mörk
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark
Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles
Viktor Bjarki Daðason - FC Köbenhavn
Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C.
Hópurinn gegn Argentínu
Markverðir
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 14 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir
Útileikmenn
Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens - 57 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa - 12 leikir
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 30 leikir, 3 mörk
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 43 leikir, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 85 leikir, 28 mörk
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 8 leikir
Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 35 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 54 leikir, 6 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 46 leikir, 14 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 17 leikir, 9 mörk
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF - 5 leikir
Meira um leikina
Leikurinn gegn Japan fer fram á þjóðarleikvanginum í Tokýó og hefst kl. 10:25 að íslenskum tíma.
Leikurinn gegn Argentínu verður svo leikinn á Jordan-Hare Stadium í Auburn í Bandaríkjunum og hefst hann kl. 01:00 aðfararnótt miðvikudagsins 10. júní að íslenskum tíma.
Ísland og Japan hafa mæst þrisvar sinnum áður í A landsliðum karla og hafa Japanir unnið þrjá sigra.
Síðasta viðureign liðanna var í Osaka í febrúar 2012 og var það fyrsti leikur íslenska liðsins undir stjórn hins sænska Lars Lagerbäck. Leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna, og mark Íslands í leiknum skoraði Arnór Smárason.
Þetta er aðeins í annað sinn sem A karla mætir Argentínu, en fyrsti leikur liðanna fór fram í lokakeppni HM 2018. Þar skildu liðin jöfn, 1-1, og var það Alfreð Finnbogason sem skoraði mark Íslands í leiknum.