Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
banner
   mið 13. maí 2026 20:45
Alexander Tonini
Viktor Örn: Klaufalegt rautt spjald en enginn ásetningur
Viktor Örn á leiðinni af velli eftir rauða spjaldið
Viktor Örn á leiðinni af velli eftir rauða spjaldið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Risastór atvik átti sér stað á 55. mínútu leiks þegar Viktor Örn Margeirsson fékk beint rautt fyrir það sem virtist vera glórulaust brot við fyrstu sýn. Við nánari athugun sést að Viktor rennur rétt áður og fóturinn fer klaufalega hátt upp. Rauða spjaldið var verðskuldað en ljóst að enginn ásetningur var í þessu hjá honum.

„Boltinn er laus skoppandi þarna og ég fer heldur hratt í þetta. Svo rennur stoðfóturinn undan mér og ég lendi illa á honum, fer vissulega aðeins of hratt í þetta og leiðinlegt atvik. En enginn ásetningur í þessu."

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Breiðablik

En fannst Viktori hann verðskulda rautt spjald?

„Já já eru þessir dómarar ekki tilbúnir að þræta fyrir sinn málstað fram í rauðan dauðann. En jú eflaust því ég fór svo hratt í hann og hvernig ég lendi á honum. Er ekki búinn að sjá hvernig þetta leit út en það má eflaust réttlæta það."

Við fyrstu sýn leit út fyrir að hinn 18 ára Örn Bragi Hinriksson þyrfti að fara af velli meiddur eftir þessa tæklingu. En sem betur fer reyndist það ekki vera tilfellið.

„Fyrst og fremst jákvætt að hann og allir sluppu óhultir frá þessu. Það er alltaf leiðinlegt ef einhverjir meiðast. En eins og ég segi þá var enginn ásetningur í þessu, ég ætlaði bara að fara á eftir boltanum. Ég fór of hratt í þetta og það rann undan mér stoðfóturinn."

Finnst Viktori líklegt að Þróttur R. spili í bestu deild á næsta ári?

„Já ef allt gengur fyrir þá og allt fer sem horfir þá á ég allt eins von á því. Þeir eru vel samheldnir, gott skipulag og heilsteypta hugmyndafræði."

Viðtalið í heild má nálgast í spilaranum hér að ofan



Slapp
banner
banner
banner