13.06.16 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimir G: Þurfum að halda sjó fyrstu 20 mínúturnar
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, hefur verið að fylgjast með Evrópumótinu og hlakkar til að sjá Ísland mæta Portúgal annað kvöld.
FH fær útileik gegn Þrótti R. í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins og býst Heimir við hörkuleik.

„Auðvitað hefðum við viljað fá heimaleik en fáum Þrótt úti og það verður hörkuleikur. Þróttur hefur verið á uppleið og verið að bæta sig eftir því sem hefur liðið á tímabilið,\" sagði Heimir, sem var síðan spurður út í EM.
„Mér líst mjög vel á keppnina, ég er búinn að horfa á nokkra leiki og bíð spenntur eftir að Ísland eigi leik.
„Ég held þetta verði erfitt á móti Portúgal sem er með gríðarlega vel mannað lið og hefur reynslu úr svona keppni, öfugt við okkur. Ég held að þetta snúist um fyrstu 20-25 mínúturnar, við þurfum að halda sjó þar og ef við gerum það þá eigum við möguleika.
„Ég myndi halda að möguleikarnir á að komast upp úr riðlinum séu nokkuð góðir.\"