Fotbolti.net
13.06.17 - 21:38
Mist Rúnarsdóttir

Ingibjörg notaði F-orðið ekki á Mörtu: Kannski næst

Auglýsing
Ingibjörg í leiknum í Dublin í síðustu viku

Ingibjörg í leiknum í Dublin í síðustu viku

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Auðvitað truflar aðeins að við höfum tapað en mér fannst allt liðið sýna góða frammistöðu,“ sagði varnarjaxlinn Ingibjörg Sigurðardóttir í samtali við Fótbolta.net eftir tapið gegn Brasilíu í vináttuleik fyrr í kvöld. Ingibjörg var að leika sinn annan A-landsleik og komst vel frá sínu líkt og í leiknum í Dublin í síðustu viku.
Ingibjörg er að koma ný inn í liðið og kann vel við sig í þriggja manna varnarlínu.

„Mjög vel. Maður fær að taka mikinn þátt í leiknum og bera upp boltann. Það er það sem mér finnst skemmtilegast og ég bara fíla þetta mjög vel.“

Ingibjörg var í liði Breiðabliks sem mætti stjórstjörnuninni Mörtu og félögum í Rosengard í Evrópukeppninni í haust. Þá lenti hin unga Ingibjörg í orðaskaki við Mörtu og notaði „F-orðið“ á þennan besta leikmann allra tíma. Hana langaði til að reyna að stuða hana aftur í kvöld en fékk ekki færi á því.

„Það kom aldrei rétta mómentið en ég var að leita eftir því sko. En nei. Ekki í dag. Kannski næst,“ sagði Ingibjörg létt.

Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.