Fotbolti.net
13.06.20 - 21:24
Sigurður Marteinsson

Helgi Sig: Við ætlum okkur upp og þorum að segja það

Auglýsing
Helgi Sig: Við ætlum okkur upp og þorum að segja það
Canon

Mynd: Raggi Óla

Mjólkurbikarinn
„Þetta var bara frábært frá A til Ö og raun strax orðin þægileg staða eftir 10-15 mínútur sagði Helgi Sigurðsson þjálfari ÍBV eftir stórsigur á Grindavík í Mjólkubikarnum.
„Við gáfum aðeins eftir eftir 20-25 mínútur og hleyptum þeim aðeins inn í leikinn en þeir voru ekkert hættulegir nema helst í föstum leikatriðum''

„Við löguðum það í hálfleik og seinni hálfleikurinn var bara að sigla þessu í hús'' Eyjamenn bættu við þremur mörkum í seinni hálfleik og gengu frá leiknum nokkuð örugglega.

Flestir sérfræðingar telja að ÍBV muni að fara upp úr Lengjudeildinni og Helgi tók undir það að það væri ekkert leyndarmál að Eyjamenn ætla sér upp. „Það hlýtur að vera, það segja það allir og við segjum það líka, við ætlum okkur auðvitað upp og þorum alveg að segja það''

Hann vildi þó ekki leggja of mikla áherslu úrslitin í leiknum í dag, þau telji lítið þegar Íslandsmótið fer af stað. „Þetta er að vísu gott veganesti inn í Íslandsmótið og það er það sem við tökum frá þessu''

Helgi segir að ÍBV sé ekki að leita að fleiri leikmönnum þessa stundina. „Við erum ánægðir með hópinn eins og hann er''
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.