Fotbolti.net
13.06.20 - 16:30
Hilmar Jökull Stefánsson

Sveindís Jane: Ánægð að hafa valið rétt lið

Auglýsing
Sveindís Jane er hún skipti yfir í Breiðablik.

Sveindís Jane er hún skipti yfir í Breiðablik.

Canon

Mynd: Breiðablik

Hertz
Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Breiðablik í dag þegar Breiðablik vann FH 3-0 en Sveindís var valin maður leiksins af Fótbolti.net og fleiri miðlum. 



Sveindís kom til Breiðabliks frá Keflavík, þar sem hún hefur verið iðin við kolann síðustu ár. Sveindís hefur skorað 22 mörk í 42 deildarleikjum fyrir Keflavík á síðustu þremur árum.



„Ég er mjög ánægð hvernig þetta spilaðist hjá okkur. Við vorum þolinmóðar og skoruðum þrjú mörk sem er frábært.“
Sveindís var eins og áður segir að spila sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik, í Pepsi Max deildinni. „Ég er mjög ánægð með þetta, að hafa valið rétt lið. Stelpurnar eru mjög góðar við mig og tóku mér mjög vel þannig þetta er alveg frábært.“ Sagði Sveindís.



Sveindís, sem er vön því að spila fremst á vellinum, er að spila með Berglindi Björgu, einum besta framherja Íslands. Hvernig er Berglind við Sveindísi?

„Hún er mjög skemmtileg, frábær karakter og hún tók mér mjög vel. Ég held ég muni læra mjög mikið af henni.“



Spurð út í persónuleg markmið sumarsins stóð Sveindís ekki á svörum.

„Fá sem flestar mínútur, það er samkeppni í liðinu og það er gott fyrir mig. Ég ætla bara að reyna fá að spila sem mest og standa mig vel.“



Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.