Timothy Castagne missir af restinni af EM eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í leiknum gegn Rússlandi í gær.
Castagne sem leikur með Leicester lenti í samstuði við Daler Kuzyaev leikmann Rússlands með þeim afleiðingum að gagnaugað bólgnaði strax upp.
Það kom svo í ljós að hann hafði tvíbrotnað og mun ekki geta leikið meira með Belgum á mótinu.
Jan Vertonghen þurfti sömuleiðis að fara af velli vegna meiðsla en Roberto Martinez landsliðsþjálfari Belgíu staðfesti það í viðtali eftir leikinn að þau meiðsli eru ekki alvarleg og verður hann væntanlega klár í næsta leik gegn Dönum 17. júní.
Athugasemdir