Fotbolti.net
13.06.26 - 16:59
Brynjar Ingi Erluson

Brann vann Íslendingaslaginn og er með níu stiga forystu

Diljá Ýr er á toppnum með Brann

Diljá Ýr er á toppnum með Brann

Canon

Mynd: Brann

Hertz
Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann sem vann 3-0 sigur á Vålerenga í toppslag í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Brann og Vålerenga eru tvö stærstu liðin í norska boltanum og verið að keppast um titla síðustu ár.

Vålerenga hefur ekki alveg verið upp á sitt besta á þessu tímabili og nýtti Brann sér það til fulls.

Brann vann 3-0 sigur með Diljá í fremstu víglínu, en hún fór af velli í síðari hálfleiknum. Arna Eiríksdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru báðar í byrjunarliði Vålerenga.

Brann er á toppnum með 31 stig, níu stigum meira en nýliðar Álasunds, á meðan Vålerenga er í 4. sæti með 19 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.