Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 12:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brighton ætlar að kaupa Vuskovic af Tottenham
Mynd: EPA
Brighton hefur lagt fram 30 milljóna punda tilboð í Luka Vuskovic leikmann Tottenham.

Vuskovic er 19 ára króatískur varnarmaður sem lék á láni hjá HSV í Þýskalandi í vetur.

Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi segir að Vuskovic sé þegar kominn með munnlegt samkomulag um kaup og kjör hjá Brighton eftir gott samtal við stjóra Brighton, Fabian Hürzeler.

Vuskovic, sem er í króatíska hópnum á HM, vill spila reglulega á næsta tímabili og sér meiri möguleika á því í Brighton en hjá Tottenham.


Slapp