Þjálfari Domzale: Valur getur komið til baka
Auglýsing

Sigurður Egill skoraði og fékk dæmt á sig víti í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Simon Rozman, þjálfari Domzale frá Slóveníu var ánægður með sigur sinna manna gegn Val í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
<i>„Við erum að sjálfsögðu ánægðir með að vinna. Við bjuggumst við svona leik. Þetta er mjög vel skipulagt lið. Við áttum í vandræðum með löngu sendingarnar þeirra og þeir eru mjög teknískt lið, sem og sterkir. Við náðum góðum úrslitum fyrir seinni leikinn,\"</i> sagði Rozman.
Slóvenarnir duttu neðar á völlinn eftir fyrra markið sitt í leiknum og var það leikplan þeirra.
<i>„Þegar við settum pressu þá notuðust þeir við langar sendingar þannig við náðum ekki seinni boltanum. Við vorum rólegir og vel skipulagðir.\"</i>
Bæði lið fengu vítaspyrnur í kvöld og voru liðin ósátt við vítaspyrnunar sem liðin fengu á sig. Rozman vildi þó lítið tjá sig um vítaspyrnudóminn sem Domzale fékk á sig í fyrri hálfleik.
<i>„Ég get ekki sagt neitt um þetta. Þetta var sextíu metra í burtu og það voru of margir leikmenn til að sjá þetta. Dómarinn dæmir og við verðum að taka því sem þeir dæma.\"</i>
Löngu sendingarnar og leikstíll Vals er öðruvísi en Slóvenarnir eru vanir í sínu heimalandi.
<i>„Þetta var mjög erfitt fyrir okkur. Þeir notast við langar sendingar og löng innkast. Það er ekki í neinum leik í Slóveníu.\"</i>
Þrátt fyrir að vera með góða stöðu fyrir seinni leikinn veit Rozman að einvígið er langt frá því að vera búið.
<i>„Við vitum að þetta er ekki búið. Þetta er mjög sterkt lið og þeir geta komið til baka og við verðum að vera tilbúnir fyrir seinni leikinn.\"</i>
Deildin í Slóveníu hefst á sunnudag en Rozman er einbeittur á Evrópudeildina og ætlar hann að hvíla einhverja leikmenn á sunnudag.
<i>„Á þessari stundu erum við einbeittir á Evrópudeildina en við megum ekki gleyma deildinni heima fyrir því hún er mikilvæg fyrir næsta tímabil.\"</i>