13.08.16 - 18:36
Arnar Daði Arnarsson
Bjössi Hreiðars: Ég er ekki að fara að gefa húfuna
Auglýsing

Bjössi ánægður með dóttur sinni eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var stressaður fram að leik en í leiknum var ekkert stress. Við mættum tilbúnir, allir gerðu það sem fyrir þá var lagt og við vorum frábærir,\" sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, eftir 2-0 sigur á ÍBV í úrslitum Borgunarbikarsins í dag.
Sigurður Egill Lárusson skoraði bæði mörk Valsmanna í fyrri hálfleiknum í dag.
„Þetta var geggjuð frammistaða. Siggi er mikill bikarkall og þetta kemur ekki á óvart. Hann er frábær leikmaður.\"
Sigurbjörn segir að það verði fagnað í kvöld. „Við ætluðum að vera með æfingu á morgun en við erum hættir við.\"
Sigurbjörn var með rándýra rauða derhúfu í leiknum í dag en hann vildi ekki gefa stuðningsmönnum hana eftir leik.
„Ég hef ekki tapað bikarleik með þessa húfu, ég er ekki að fara að gefa hana,\" sagði Sigurbjörn.
Hér að ofan má sjá viðtalið heild sinni.