Fotbolti.net
13.08.19 - 22:31
Helga Katrín Jónsdóttir

Sandra Sif: Það er hræðilegt að tapa svona stórt

Auglýsing
Sandra Sif: Það er hræðilegt að tapa svona stórt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Augnablik steinlá í kvöld fyrir toppliði deildarinnar. Sandra Sif, fyrirliði Augnabliks, var mjög svekkt í leikslok.
"Mér líður mjög illa, ég þoli ekki að tapa. Það er hræðilegt að tapa svona stórt, ég hef aldrei lent í því áður svo þetta er pínu skrítið."



"Við mættum bara ekki í fyrri hálfleik, þær voru miklu sterkari en við í föstum leikatriðum og það voru alltaf fyrirgjafir og föst leikatriði sem þær voru að skora úr. Við gerðum bara ekki vel í því, eiginlega bara frekar illa."



Það var allt annað að sjá til Augnabliks í seinni hálfleik en þá fóru þær aftur í leikkerfið sem þær hafa verið að spila í sumar.



"Já við byrjuðum á að fara í nýtt leikkerfi í fyrri hálfleik sem við kunnum ekki nógu vel. Seinni hálfleikur var bara til þess að setja tóninn fyrir næsta leik og reyna að sjá hvað við getum gert í næsta leik."



Augnablik á leik gegn Tindastóli í næstu umferð. Hvernig leggst það í Söndru?



"Það leggst bara vel í mig. Við verðum að reyna að byggja ofan á þetta og reyna að klóra í nokkur stig í næstu leikjum."



Viðtalið við Söndru má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.