Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. ágúst 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Mark Son valið mark tímabilsins
Mynd: Getty Images
Markið sem Heung-Min Son skoraði fyrir Tottenham gegn Burnley í desember hefur verið valið mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Son skoraði eftir ótrúlegan sprett upp allan völlinn þar sem hann fór illa með varnarmenn Burnley.

Eftir leik sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, að markið hefði minnt sig á mark sem brasilíski framherjinn Ronaldo skoraði fyrir Barcelona gegn Compostela fyrir fjórtán árum síðan.

Hér að neðan má sjá markið.

Athugasemdir
banner
banner