Fotbolti.net
13.08.22 - 19:22
Ívan Guðjón Baldursson

David de Gea: Tek fulla ábyrgð á þessu tapi

David de Gea: Tek fulla ábyrgð á þessu tapi
Canon

Mynd: EPA

David de Gea var miður sín eftir vandræðalegt 4-0 tap Manchester United gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

De Gea stóð á milli stanga Man Utd en átti afleitan dag þar sem hann gaf andstæðingunum fyrstu tvö mörk leiksins með tveimur hrikalegum mistökum.

„Ég tek fulla ábyrgð á þessu tapi. Mér fannst ég kosta liðið mitt þrjú stig. Þetta var hörmuleg frammistaða hjá mér," sagði De Gea í viðtali að leikslokum.

„Það var erfitt fyrir liðsfélagana að snúa leiknum við eftir að ég gerði þessi tvö mistök. Ég átti að verja fyrsta skotið, hefði ég gert það þá hefði þessi leikur farið allt öðruvísi."

Rauðu djöflarnir eru stigalausir eftir tvær fyrstu umferðir tímabilsins. Þeir töpuðu á heimavelli gegn Brighton í fyrstu umferð.

„Við verðum að bregðast betur við þegar við lendum undir. Þetta var hörmuleg frammistaða hjá liðinu í heild. Það er alltof auðvelt að spila leiki á undirbúningstímabilinu þegar ekkert er undir. Þú þarft að sýna alvöru hugrekki og vera með almennilega leikmenn til að sigra leikina sem skipta máli.

„Við þurfum bara að halda áfram á okkar braut með stjóranum því við erum aðeins á upphafsmetrunum. Við þurfum að bæta okkar leik til muna."

David de Gea: Tek fulla ábyrgð á þessu tapi
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.