Fotbolti.net
01.11.26 - 15:35
Brynjar Ingi Erluson

Nökkvi frábær í Hollandi - Kristall skoraði sigurmark Brann

Nökkvi Þeyr skoraði og lagði upp

Nökkvi Þeyr skoraði og lagði upp

Canon

Mynd: Telstar

Kristall Máni Ingason var aftur á skotskónum með Brann sem vann 3-2 sigur á Molde í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Kristall skoraði í bikarsigri Brann á dögunum og hafði nokkrum dögum áður lagt upp mark gegn Lilleström.

Hann hélt uppteknum hætti í dag þegar hann skoraði sigurmark Brann gegn Molde, tíu mínútum fyrir leikslok.

Þetta var sjöunda deildarmark Kristals á tímabilinu og tryggði það Brann þrjú dýrmæt stig, en liðið fór með sigrinum upp í sjöunda sæti deildarinnar með 32 stig.

Eggert Aron Guðmundsson var einnig í byrjunarliði Brann og þá kom Sævar Atli Magnússon inn af varamannabekknum.

Kristian Nökkvi Hlynsson lék síðustu tuttugu mínúturnar í ótrúlegum 9-0 sigri Twente á Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni, en Ágúst Orri Þorsteinsson leikur með síðarnefnda liðinu.

Wout Weghorst, fyrrum leikmaður Manchester United, fór mikinn í leiknum og skoraði þrennu í fyrri hálfleik áður en hann bætti fjórða markinu við í þeim síðari.

Ágúst Orri sat allan tímann á varamannabekk Excelsior, sem verður að teljast nokkuð óvænt í ljósi þess að liðið þurfti svo sannarlega á mörkum að halda. Það gæti þó skýrst af því að Excelsior missti mann af velli með rautt spjald snemma leiks.

Twente situr í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig, en Excelsior er í 14. sæti með ellefu stig.

Nökkvi Þeyr Þórisson átti síðan frábæran leik í 4-2 sigri Telstar á Utrecht, þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp annað.

Nökkvi kom sínum mönnum í 3-1 á 44. mínútu og lagði síðan upp fjórða mark Telstar þegar hálftími var til leiksloka.

Hann hefur þar með skorað tvö mörk og lagt upp fjögur á tímabilinu, en Telstar situr í 16. sæti deildarinnar með níu stig.
Kristall Máni var aftur á skotskónum með Brann

Kristall Máni var aftur á skotskónum með Brann

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.