Fotbolti.net
01.11.26 - 15:56
Brynjar Ingi Erluson

Glódís ekki með Bayern vegna hnémeiðsla

Glódís ekki með Bayern vegna hnémeiðsla
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern München og íslenska landsliðsins, var ekki í leikmannahópi Bayern gegn Bayer Leverkusen í bikarnum í dag vegna hnémeiðsla.
Miðvörðurinn lék með Bayern í 2-2 jafnteflinu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á dögunum, en var ekki leikfær fyrir bikarleikinn gegn Leverkusen.

Bayern greindi frá því þegar byrjunarliðið var tilkynnt að hún væri frá vegna hnémeiðsla, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg þau eru.

Vonandi er ekki um alvarleg meiðsli að ræða, enda er hún gríðarlega mikilvægur hlekkur í bæði liði Bayern og íslenska landsliðinu.

Ísland mætir Portúgal í tveimur leikjum um sæti á HM í byrjun desember og það yrði mikið áfall fyrir íslenska liðið ef hún gæti ekki tekið þátt í þessum mikilvægu leikjum.

Bayern vann bikarleikinn gegn Leverkusen 1-0 þar sem Pernille Harder skoraði eina mark leiksins og tryggði liðinu sæti í átta liða úrslitum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.