Fotbolti.net
13.08.26 - 21:00
Sigurjón Árni Torfason

Damir: Mér fannst hann bara ógeðslega lélegur í dag

Auglýsing
Damir var sáttur eftir leik

Damir var sáttur eftir leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Grindavík tók á móti Þrótti á Stakkavíkurvellinum í 18. umferð Lengjudeildar karla. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna í gríðarlega fjörugum og skemmtilegum leik þar sem nóg var um að vera. Grindvíkingar höfðu að lokum betur og tryggðu sér öll þrjú stigin. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir og heyrðu í Damir eftir leik.
Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 1 Þróttur R.
„Bara ekkert eðlilega ánægður. Við lögðum ekkert eðlilega mikla orku í þennan leik. Ætluðum að pressa hátt og við byrjuðum á því, skorum mark upp úr því. Einhvern veginn leggjumst aðeins niður í fyrri hálfleik, þeir fá nokkur færi. Og orkan sem fór hérna í seinni hálfleik var ekkert eðlilega mikil og ég er ekkert eðlilega stoltur af liðinu mínu í dag. Þetta er bara ógeðslega mikilvægt."

Grindavík leiddi 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Þróttarar mættu hins vegar af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og sóttu vítaspyrnu áður en mínúta var liðin. Damir braut þá á Tryggva Snæ, leikmanni Þróttar, innan vítateigs og vítaspyrna dæmd.

„Mér fannst það frekar soft sko, ég setti ekki fótinn út, felldi hann ekki. Hann einhvern veginn fer fram hjá mér og rekst í mig og fer niður. Ég veit það ekki, mér fannst þetta bara, mér fannst þetta soft og mér fannst dómarinn... Ég tala voða lítið um dómara og gagnrýni dómara, en mér fannst hann bara ógeðslega lélegur í dag, engin lína, dæmdi allt á okkur og lítið fyrir okkur. Æi ég nenni ekki að tala um dómarann, ég var bara ekkert eðlilega glaður að vinna í þennan leik."

Sagði Damir við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.