13.08.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson
Nýgiftur Ronaldo mætti með nýtt útlit eftir sumarfríið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski framherjinn Cristiano Ronaldo er mættur aftur úr sumarfríinu, nýgiftur og með glænýtt útlit fyrir komandi tímabil.
Ronaldo hefur reglulega breytt um stíl á löngum ferli. Þegar hann kom til Manchester United árið 2003 var hann með strípur og skartaði um tíma síðu að aftan.
Nú hefur Portúgalinn enn á ný breytt um útlit en hann mætti rauðhærður til baka úr fríinu.
Ronaldo giftist ástinni sinni, Georginu Rodríguez, á dögunum. Nýr kafli er hafinn í lífi hans og honum fylgir greinilega nýr háralitur.
Hann er með stórt markmið fyrir tímabilið og ætlar sér að rjúfa þúsund marka múrinn.
Ronaldo er kominn með 976 mörk á ferlinum og ætti að eiga góða möguleika á að ná markinu haldist hann heill.

???????????????? Cristiano Ronaldo returns to Al Nassr training ground, ready for new season. ???????????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 13, 2026
1000 goals milestone, another big mission. pic.twitter.com/gcJDKSomvt