Fotbolti.net
13.08.26 - 14:18
Fótbolti.net

Spá fyrir Championship - Eini Íslendingurinn í fallbaráttu

Jarrod Bowen.

Jarrod Bowen.

Canon

Mynd: EPA

Enska B-deildin, Championship-deildin, fer af stað á morgun og ljóst er að vera West Ham í deildinni gerir það að verkum að fleiri augu beinast að henni en á síðasta tímabili.

ESPN setti saman spá fyrir deildina.
1. West Ham United
Hamrarnir féllu úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en Nuno Espírito Santo á að koma liðinu beint upp aftur. Liðið er með Jarred Bowen, Taty Castellanos og Simon Adingra í sóknarleiknum og Edson Álvarez og Soungoutou Magassa á miðsvæðinu. Með blöndu af leikmönnum með úrvalsdeildarreynslu og ungum hæfileikaríkum leikmönnum. Eiga að fara beint upp.

2. Wolves
Úlfarnir ættu líka að fara beint upp aftur. Leikmaður eins og Mateus Mané ætti að springa út og þá er Raul Jimenez mættur aftur. Stjórinn er spurningamerki en hinn portúgalski Cesar Peixoto er ekki með reynslu úr enska boltanum.

3. Middlesbrough
Hinn sænski Kim Hellberg er spennandi stjóri, markvörðurinn Radek Vítek kom frá Manchester United og sóknarmaðurinn Will Lankshear frá Tottenham. Hayden Hackney er farinn en Sebastian Berhalter var sóttur í staðinn. Liðið þarf að sýna meiri stöðugleika en það hefur gert og gefa ekki eftir á lokasprettinum. Championship-deildin er maraþon.

4. Southampton
Skuggi njósnamálsins liggur enn yfir Dýrlingunum og liðið mun byrja með fjögur mínusstig. Þá bíður stjórinn Tonda Eckert eftir því hvaða refsingu hann fær frá enska fótboltasambinu. Innan vallar eru Daniel Peretz og Cyle Larin komnir aftur og Lewis Dobbin var sóttur frá Aston Villa.

5. Norwich City
Gengi liðsins tók miklum framförum eftir að Philippe Clement tók við í nóvember. Meiðsli hafa verið vandamál en sóknarmaðurinn Jovon Makama gæti orðið ein skærasta stjarna deildarinnar, ef hann helst heill.

6. Burnley
Hafa farið beint upp síðustu tvö skipti sem þeir hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni. Maxime Estève, Jaidon Anthony og Axel Tuanzebe eru farnir og Burnley er mikið spurningamerki. Belginn Nicky Hayen er tekinn við en hann vann titla með Club Brugge.

7. Millwall
Misstu af beinu sæti upp í lokaumferðinni í fyrra og töpuðu svo fyrir Hull í umspilinu. Með blöndu af ungum og reynslumeiri leikmönnum.

8. Sheffield United
Með gott byrjunarlið en þurfa meira til að blanda sér í baráttu um að komast upp.

9. Derby County
Gætu gert atlögu að umspilssæti ef lykilmenn haldast heilir.

10. Bristol City
Stjórinn Michael Skubala gerði magnaða hluti með Lincoln og það er spenna fyrir honum í Bristol.

11. Wrexham
Þetta hefur verið hófstilltur félagaskiptagluggi hjá Hollywood liðinu.

12. QPR
Erfitt að lesa í QPR. Gætu komið á óvart og hreppt umspilssæti.

13. Swansea City
Elijah Just sem kom frá Motherwell er skemmtilegur leikmaður en varnarleikurinn er veikleikamerki.

14. Birmingham City
Öflugir á heimavelli en afleitir á útivöllum var saga síðasta tímabils.

15. West Brom
James Morrison tók við og liðið spilaði flottan fótbolta þegar það náði að halda sæti sínu. Getur það haldið áfram?

16. Watford
Alessio Dionisi nýr stjóri liðsins er 24. fastráðni stjórinn hjá félaginu á 14 árum. Búist við stjóraskiptum fyrir jól.

17. Portsmouth
Stjórinn John Mousinho hefur sýnt að hann getur gert mikið með lítið fjármagn og hann þarf að halda því áfram.

18. Cardiff City
Nýkomnir upp og tímabilið snýst um að reyna að halda sér uppi.

19. Blackburn Rovers
Andri Lucas Guðjohnsen, eini Íslendingurinn í deildinni, og hans félagar eiga erfitt tímabil fyrir höndum.

20. Stoke City
Það hefur orðið stöðnun hjá Stoke og það verður aftur erfitt tímabil.

21. Preston North End
Fyrirliðinn Ben Whiteman fór til Wrexham og Preston virkar týnt.

22. Bolton Wanderers
Komnir aftur í Championship-deildina eftir sjö ára fjarveru. Útlit fyrir erfitt tímabil þar sem þeir þurfa að hafa mikið fyrir mörkum og að halda hreinu.

23. Charlton Athletic
Þeir rétt náðu að bjarga sér frá falli á síðasta tímabili en líklegt er að þeir fari niður núna.

24. Lincoln City
Magnað afrek hjá þeim að komast upp en Championship-deildin er væntanlega of stór biti. Þeim skortir bæði gæði og breidd.



Fyrsta umferðin:

föstudagur 14. ágúst
19:00 Wolves - Blackburn

laugardagur 15. ágúst
11:30 Bolton - Preston NE
14:00 Bristol City - Millwall
14:00 Charlton Athletic - Derby County
14:00 Middlesbrough - Lincoln City
14:00 Norwich - West Brom
14:00 Portsmouth - QPR
14:00 Stoke City - Swansea
16:30 Sheffield Utd - Birmingham

sunnudagur 16. ágúst
12:30 Watford - Southampton
15:00 Burnley - West Ham

mánudagur 17. ágúst
19:00 Cardiff City - Wrexham

Heimild: ESPN

Mateus Mané.

Mateus Mané.

Canon

Mynd: EPA

Tonda Eckert, stjóri Southampton.

Tonda Eckert, stjóri Southampton.

Canon

Mynd: EPA

Kyle Walker og félagar í Burnley í æfingaleik gegn Ajax á undirbúningstímabilinu.

Kyle Walker og félagar í Burnley í æfingaleik gegn Ajax á undirbúningstímabilinu.

Canon

Mynd: EPA

Sam Smith fagnar marki fyrir Wrexham.

Sam Smith fagnar marki fyrir Wrexham.

Canon

Mynd: EPA

Heimavöllur Wrexham.

Heimavöllur Wrexham.

Canon

Mynd: EPA

Heimavöllur Cardiff.

Heimavöllur Cardiff.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Andri Lucas Guðjohnsen.

Andri Lucas Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.