Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. september 2020 20:00
Hafliði Breiðfjörð
Myndir: Formaður KR reyndi að vísa stuðningsmanninum út
Páll og Haukur í stúkunni í kvöld. Fleiri myndir má sjá neðst í fréttinni.
Páll og Haukur í stúkunni í kvöld. Fleiri myndir má sjá neðst í fréttinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmaður Stjörnunnar, Haukur Þorsteinsson, hljóp inn á völlinn og fagnaði sigurmarki liðsins í 1 -2 sigri á KR í vesturbænum í dag. Athygli vakti að engin gæsla var á vellinum svo stuðningsmaðurinn komst óhindrað inn á völlinn og útaf honum aftur.

Hann klifraði því upp í stúku aftur eftir að hafa fagnað með liðinu og kom sér fyrir meðal annarra stuðningsmanna úr stuðningsmannasveitinni Silfurskeiðinni.

Páll Kristjánsson formaður KR horfði á þetta gerast þar sem hann sat í stúkunni og átti orðaskipti við Hauk sem á endanum var vísað úr stúkunni.

Haukur hefur áður hlaupið inn á völlinn en hann gerði það með öðrum félaga sínum í sigurleik gegn FH í Kaplakrika árið 2018.

Myndirnar að neðan sýna þetta atvik.
Athugasemdir
banner
banner
banner