Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 13. október 2019 10:51
Magnús Már Einarsson
Alfreð: Andorra sérfræðingar í að pirra andstæðinginn
Icelandair
Alfreð í leiknum gegn Frökkum á föstudag.
Alfreð í leiknum gegn Frökkum á föstudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið mun væntanlega vera mun meira með boltann í leiknum gegn Andorra annað kvöld. Andorra vann á föstudag sinn fyrsta leik í sögunni í undankeppni EM þegar liðið lagði Moldóva 1-0 á heimavelli. Andorra er í 183. sæti á heimslista FIFA og er ekki hátt skrifað í fótboltaheiminum.

Ljóst er að leikurinn annað kvöld verður allt öðruvísi en á föstudag þegar Íslendingar mættu heimsmeisturum Frakka.

„Það eru öðruvísi atriði í undirbúningi fyrir leik á móti Frökkum og Andorra. Andorra hefur að meðaltali verið 25% með boltanns svo við gerum ráð fyrir því að við verðum 70-80% með boltann. Þá reynir á aðra eiginleka í okkar leik. Að það sé tempó í sendingum og við stjórnum tempóinu í leiknum," sagði Alfreð á fréttamannafundi í dag.

„Við megum ekki láta þá fara í hausinn á okkur. Moldóvar misstu hausinn gegn þeim og fengu rautt spjald. Andorra eru sérfræðingar í að pirra andstæðinginn eins og sást í útileiknum. Við sáum á klippum í gær að þetta eru sömu klippur og í mars. Þeir haf ekki breytt um leikstíl."

„Það er alltaf erfitt að spila á móti tíu manna blokk í fótbolta, þegar þeir eru á teignum og eru þéttir. Frakkar og Tyrkir áttu erfitt með að brjóta þá á bak aftur. Við gerum þá kröfur að við klárum svona leiki, komum boltanum inn í teig og klárum þær stöður. Þetta verður þolinmæðisverk en við gerum þær kröfur að við eigum að klára þá á heimavelli,"
sagði Alfreð.
Athugasemdir
banner