Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 13. október 2020 06:00
Victor Pálsson
Gríðarlega hrifinn af Nketiah
Mynd: Getty Images
Aidy Boothroyd, þjálfari enska U21 landsliðsins, er mikill aðdáandi framherjans Eddie Nketiah sem spilar með Arsenal.

Nketiah er hluti af enska U21 landsliðinu og hefur skorað 13 mörk í 11 landsleikjum til þessa.

Boothroyd segir að framtíð sóknarmannsins sé björt og vonar að hann fái fleiri mínútur hjá Arsenal á þessu tímabili.

„Það er engin spurning að hann eigi framtíðina fyrir sér. Hann er með leiðtogahæfileika og kann að taka ábyrgð," sagði Boothroyd um þennan 21 árs gamla leikmann.

„Hann er með náttúrulega hæfileika, öllum leikmönnum líkar vel við hann og sýna honum virðingu. Við vitum hvað hann gefur á vellinum en hann er líka góður utan vallar."

„Hversu langt kemst hann? Hann þarf að spila reglulega með félagsliði. Hann hefur fengifð tækifæri og staðið sig vel. Ég hef unnið með honum í þrjú ár og hann heldur áfram að bæta sig."

„Hann á mikla vinnu framundan og hann er sá fyrsti til að viðurkenna það. Hann getur gert mjög vel."

Athugasemdir
banner
banner