Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 13. október 2021 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Ánægður að vinna með Freysa - „Þeir banna okkur að tala íslensku"
Sævar Atli Magnússon í leiknum gegn Portúgölum
Sævar Atli Magnússon í leiknum gegn Portúgölum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby
Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby
Mynd: Lyngby
Sævar Atli Magnússon hefur verið að gera góða hluti með danska B-deildarliðinu Lyngby en liðið er í öðru sæti eftir tíu leiki. Hann ræddi aðeins við Fótbolta.net um atvinnumennskuna og samstarfið með Frey Alexanderssyni.

Lyngby keypti Sævar eftir góða frammistöðu hans með Leikni í sumar en Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.

Liðið hefur unnið sjö af fyrstu tíu leikjunum og situr í öðru sæti en Sævar hefur verið að koma inná sem varamaður. Hann er með eitt mark og eina stoðsendingu í níu leikjum og er ánægður með veruna til þessa.

„Þetta er búið að vera ógeðslega skemmtilegt og krefjandi. Þetta er gríðarlegt gott lið og erum í toppbaráttunni í dönsku fyrstu deildinni og bestu liðin í deildinni eru öflug og ég er búinn að fá að koma inná í hverjum einasta leik og við erum á siglingu eins og er með 2-3 sigurleiki í röð. Þetta er gríðarlega skemmtilegt og ég er mjög spenntur fyrir framhaldinu," sagði Sævar við Fótbolta.net.

Freyr tók við þjálfun liðsins fyrir tímabilið og fékk Sævar til félagsins en báðir eru þetta uppaldir Leiknismenn. Hann segir það algjöran plús að fá að vinna með honum en þeir verði helst að sleppa því að tala íslensku saman.

„Það er þægilegt. Ég hef verið í Leikni allt mitt líf og virkilega þægilegt að geta verið með hann og hann hjálpar mér mikið. Ég fæ samt alveg að heyra það frá strákunum í klefanum að ég sé Íslendingur og hann sé Íslendingur, þannig þeir banna okkur að tala íslensku á milli okkar en hann hefur hjálpað mér gríðarlega mikið og það er mjög gott að vera með hann," sagði hann í lokin.
Sævar Atli: Spenntur að spila aftur við þá
Athugasemdir
banner
banner
banner