Fotbolti.net
13.10.26 - 21:20
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Middlesbrough vann á köldu kvöldi í Stoke

Callum Brittain var maður leiksins í Stoke

Callum Brittain var maður leiksins í Stoke

Canon

Mynd: Middlesbrough FC

Middlesbrough vann dramatískan 3-2 sigur á Stoke City í ensku B-deildinni í kvöld.
Það eru ekki allir sem geta unnið Stoke á köldu þriðjudagskvöldi í Stoke-on-Trent, en Middlesbrough tókst það í kvöld.

Callum Brittain kom Boro yfir á 48. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar varð Neto Borges fyrir því óláni að skora sjálfsmark og jafna þar með leikinn.

Will Lankshear kom gestunum aftur yfir á 73. mínútu en Robert Bozenik jafnaði metin fyrir Stoke þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Dramatíkinni var hins vegar ekki lokið því þegar ein mínúta var liðin af uppbótartíma breyttist Borges úr skúrk í hetju þegar hann skoraði sigurmark Middlesbrough og tryggði liðinu stigin þrjú.

Boro er þar með komið upp í annað sæti deildarinnar með 21 stig.

Birmingham City vann þá stórsigur á Preston, 4-0, þar sem August Priske skoraði tvennu. Liam Millar og Demarai Gray voru einnig á skotskónum.

Birmingham er í þriðja sæti með 17 stig á meðan Preston situr sem fastast á botninum með aðeins fjögur stig.

Birmingham 4 - 0 Preston NE
1-0 Liam Millar ('34 )
2-0 August Priske ('45 )
3-0 August Priske ('45 )
4-0 Demarai Gray ('76 )
Rautt spjald: Stanley Mills, Preston NE ('56)

Stoke City 2 - 3 Middlesbrough
0-1 Callum Brittain ('48 )
1-1 Neto Borges ('50 , sjálfsmark)
1-2 Will Lankshear ('73 )
2-2 Robert Bozenik ('85 )
2-3 Neto Borges ('90 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.